Meðalútsvarið verður 14,41%//Maður hugsar til þeirra sem hafa lægsta flokkin,sem er of hár !!!

Meðalútsvarið verður 14,41%
Innlent | mbl.is | 22.12.2010 | 16:06

Skorradalshreppur er annar tveggja sveitarfélaga á landinu... Af 76 sveitarfélögum leggja 66 á hámarksútsvar en tvö sveitarfélög leggja á lágmarksútsvar. Meðalútsvarið verður 14,41% í stað 13,12%.

Nú liggja fyrir útsvarsprósentur sveitarfélaga fyrir árið 2011. Meðalútsvarið verður 14,41% í stað 13,12% . Með yfirfærslu á málefnum fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga á næsta ári hækkaði útsvarsheimild sveitarfélaga um 1,2 prósentustig. Sveitarfélögin geta nú samkvæmt lögum ákveðið útsvar á bilinu 12,44% til 14,48%.

Sveitarfélögin sem leggja ekki á hámarksútsvar eru Reykjavík, Seltjarnarnes, Garðabær, Kjósarhreppur, Skorradalur, Hvalfjarðarsveit, Tjörneshreppur, Fljótsdalshreppur, Ásahreppur og Grímsnes- og Grafningshreppur. Í öllum öðrum sveitarfélögum er útsvarsprósentan 14,48%. Skorradalur og Ásahreppur eru með lægsta útsvarið á landinu 12,44%.

Hæsta staðgreiðsluhlutfallið 46,21%

 

Samkvæmt upplýsingum frá fjármálaráðuneytinu verður staðgreiðsluhlutfall tekjuskatts og útsvars í þremur þrepum; 37,31%, 40,21%  og 46,21%. Mánaðarleg tekjumiðunarmörk þrepa verða 209.400 kr. í fyrsta þrepi, 471.150 kr. í öðru þrepi og 680.550 kr. í þriðja þrepi.

Persónuafsláttur hvers einstaklings verður óbreyttur eða 44.205 krónur að meðaltali á mánuði og skattleysismörk 123.417 kr. að teknu tilliti til 4% lögbundinna iðgjaldsgreiðslu launþega í lífeyrissjóð./////þetta er kvíðanlegt að fólk skuli borga svona háa skatta ,þekki bar þarna það er skattur á öllu tollur vörugjöld virðisauki og fleira,þegar upp er staðið er þetta útsvar og tekjuskattur bara helmingur eða svo sem fólkið borgar,þetta með lægsta þrepið er hæpið mjög að það getu gengið þegar persónuafsláttur er ekki hærri hann þyrfti að hækka ekki spurning,fólk sem gert er að borga skatt á yfir 124 þúsund hver lifir á því ekki sér maður það/Halli gamli


mbl.is Meðalútsvarið verður 14,41%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta gengur ekki upp!!! Í Danmörku er persónuafslátturinn á mánuði rúmar 90 þúsund krónur og skatthlutfallið er um 41% á lægstu laununum sem eru þetta í kringum 127 danskar krónur(2667 íslenskar krónur) fyrir dagvinnutímann án orlofs sem er 12%.

Baldvin Nielsen Reykjanesbæ 

B.N. (IP-tala skráð) 22.12.2010 kl. 23:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 1045708

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 48
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband