Leeds skoraði tvö sjálfsmörk/mitt gamla góða lið Leeds er óheppið mjög ,þegar mikið lyggur við!!!

Leeds skoraði tvö sjálfsmörk
Íþróttir | mbl.is | 28.12.2010 | 17:04

Hermann Hreiðarsson.Portsmouth, lið Hermanns Hreiðarssonar, náði jafntefli gegn Leeds á útivelli, 3:3, í ensku 1. deildinni í knattspyrnu í dag, þrátt fyrir að hafa lent 2:0 og 3:1 undir.

Andy O'Brien, varnarmaður Leeds, vill eflaust gleyma leiknum sem fyrst. Hann skoraði tvö síðari mörk Portsmouth, sem sagt tvö sjálfsmörk, og það síðara á þriðju mínútu í uppbótartíma.

Hermann var varamaður hjá Portsmouth og kom ekki við sögu. Hann var í fyrsta skipti í byrjunarliði Portsmouth í níu mánuði á sunnudaginn, en hann er að komast í gang eftir að hafa slitið hásin í fæti. Steve Cotterill knattspyrnustjóri Portsmouth hefur ítrekað sagt að hann vilji ekki setja of mikið álag á Hermann strax og lét hann því ekki spila tvisvar á þremur dögum.

Watford vann Cardiff, 4:1, og þar með vænkaðist enn hagur Heiðars Helgusonar og félagar í QPR á toppi deildarinnar. Þeir unnu Coventry 2:0 fyrr í dag og eru með 47 stig en Cardiff, Swansea og Leeds eru með 40 stig hvert og Norwich 39.

Reading gerði 1:1 jafntefli við Hull á útivelli en Ívar Ingimarsson og Brynjar Björn Gunnarsson voru ekki í leikmannahópnum. Þeir eru báðir að komast af stað eftir langvarandi meiðsli.

Jóhannes Karl Guðjónsson lék síðustu 20 mínúturnar með Huddersfield sem steinlá fyrir Southampton á útivelli í 2. deild, 4:1.

Kári Árnason lék allan leikinn með Plymouth sem gerði 1:1 jafntefli við Notts County í 2. deild.///Æi þetta var leiðinlegt með unninn leik,og maður bara leiður ,þar sem maður bíður eftir að þeir komist i Úrvaldsdeilt aftur eftir mikillar raunir og tap síðustu ára!!!,en maður hefur miklar taugar til þessa liðs/Mjög svo/Halli gamli 


mbl.is Leeds skoraði tvö sjálfsmörk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 1045715

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 46
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband