Tilbúnar til að skoða matarkort/það er gallað einnig,ekki víst að,þar komi peningar gefins???

Tilbúnar til að skoða matarkort
Innlent | mbl.is | 3.1.2011 | 13:52

Biðröð hjá Fjölskylduhjápinni. Ragnhildur Guðmundsdóttir, formaður Mæðrastyrksnefndar, segir að hún sé tilbúin til að skoða kosti þess að taka upp matarkort við úthlutun matargjafa til fátæks fólks sem óskar eftir aðstoð.

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, gerði biðröð eftir matarúthlutun að umfjöllunarefni í nýársávarpi sínu: „Samfélag sem kennir sig við norræna velferð getur ekki liðið að vikulega standi þúsundir í biðröðum eftir mat. Við skulum sameinast um að afmá þennan smánarblett strax á næstu mánuðum.“

Ragnhildur sagði að ein leið til að útrýma biðröðum væri að taka upp matarkort sem fólk getur notað í verslunum. „Við teljum hjá Mæðrastyrksnefnd að við þurfum að fá góðar upplýsingar um matarkortin, kosti þeirra og galla. Við þurfum að skoða hvernig á að vinna þetta. Við teljum að sú umræða þurfi að fara fram áður en við tökum nokkrar ákvarðanir um breytingar. En við erum að sjálfsögðu tilbúnar til að ræða tillögur og hugmyndir sem eru til bóta.“

Ragnhildur sagði að Mæðrastyrksnefnd væri núna að ganga frá eftir aðstoðina um jólin, en síðan yrði opnað aftur fyrir úthlutun seinna í janúar.

Ragnhildur sagði að ef það ætti að taka upp matarkort við matarúthlutun þyrftu fleiri að koma að málinu, m.a. stjórnvöld, sveitarfélögin og ekki síst verslunin/////þetta mun orka tvímælis og vel það þá skoðað er,það er ekki víst að það að safna peningum fyrir matargjafir gangi eins vel ,alls ekki verslanir og heildsalar gefa mat sem oft er að koma a´séðasta söludag og þa' bara gott ef nytist,en ekki vist að það opinbera geri neitt frekar í þessum malum sáum það þegar þessi samtök fóru i sumarfrí það vildi engin helst gera neitt,aftur má laga aðstæður og það vel nóg er til að ónýttum plássum sem hægt væri að lána undir slíkt,svo þetta vandamal með útlendingana sem eru að fá þetta sem sögusagnir ganga um en ekki þurfa ,og kannski fleiri má lækna akki spurning/Halli gamli


mbl.is Tilbúnar til að skoða matarkort
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 1045651

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband