Vill að sveitarfélög hækki fjárhagsaðstoð/Er ríkissjóður að koma öll á sveitafelögin!!!!

Vill að sveitarfélög hækki fjárhagsaðstoð
Innlent | mbl.is | 4.1.2011 | 16:50

Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra. Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra hefur beint tilmælum til sveitarstjórna um að þær hækki fjárhagsaðstoð til einstaklinga þannig að mánaðarleg framfærsla þeirra verði sambærileg og hjá fólki á atvinnuleysisbótum.
 í bréfi ráðherra er bent á markmið laga um félagsþjónustu sveitarfélaga sem er að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi og stuðla að velferð íbúa á grundvelli samhjálpar, meðal annars með því að bæta lífskjör þeirra sem standa höllum fæti. Einnig er vísað til þeirrar lagaskyldu sem hvílir á sveitarfélögum að tryggja að íbúar þeirra geti séð fyrir sér og sínum.

Vísað er til umræðu síðustu missera um erfiða stöðu þeirra sem byggja framfærslu sína á lágmarksbótum almannatrygginga atvinnuleysisbótum eða fjárhagsaðstoð sveitarfélaga. „Horft var til þessarar erfiðu stöðu þegar lágmarkstekjuviðmið til framfærslu lífeyrisþega sem búa einir var hækkað umtalsvert í janúar 2009 og verður frá og með 1. janúar 2011 rúmar 184.000 kr. Fullar atvinnuleysisbætur nema tæpum 150.000 kr. á mánuði. Grunnfjárhæð sveitarfélaganna hefur að jafnaði verið mun lægri sem getur gert fjárhagslega stöðu þeirra, sem þurfa að reiða sig eingöngu á aðstoð sveitarfélaganna, slaka í samanburði við aðra sem fá bætur frá hinu opinbera,“ segir enn fremur í bréfinu./////Er ríkissjóður að koma öllum verkefnum á sveitfélögin sem eru að sligast flest,það ber þá að deila gjöldum sem við borgum til Ríks og sveita jafnar ef svo á að vera,MAÐUR hefði haldið að með byggðarstefnu sem á að vera eigi þetta ekki heima í ynni sveitafélögum alls ekki,og að stækka þau endalaust er ekki það sem gengur,hvert fara allir þessir skattar og skyldur sem verið er að hækka ef ekki til jöfnunar fyrir okkur alla Íslendinga ,maður er hættur að skilja þetta,er þetta svona i ESB ,bara veit að ekki ,en eftir öðru er allt orðið gert til þessa að komast inn ,eða er það ekki,sést það ekki á öllu,in skulum við kvað  sem  það kostar,eða svo segir Jóhanna og c/o,en svona er fyrir okkur komið!!!!/Halli gamli


mbl.is Vill að sveitarfélög hækki fjárhagsaðstoð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 1045708

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 48
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband