12 m ölduhæð á Grímseyjarsundi/þetta með því mesta sem mælst hefur???

12 m ölduhæð á Grímseyjarsundi
Innlent | mbl.is | 7.1.2011 | 11:16

Siglufjörður Aðeins mátti merkja hreyfingu í Siglufjarðarhöfn í gærkvöldi en þar var stórstraumsflóð um hálfeitt í nótt. Norðan- og norðaustan stormur hefur verið á Siglufirði og ölduhæð á Grímseyjarsundi 12 metrar í morgun. Það er með því mesta sem þar sést, að sögn Sigurðar Sigurðssonar, yfirhafnarvarðar.

Sigurður sagði að vindur hafi verið þannig að Siglufjörður hafi verið mikið í skjóli. „Það er hins vegar svakalegur sjór hérna fyrir utan. Það er mikið meira brim en var í gærkvöldi. Það var 12 metra ölduhæð á duflinu á Grímseyjarsundi klukkan 10 í morgun. Það er með því mesta sem maður sér,“ sagði Sigurður. Ölduhæðin var komin í 10,7 metra klukkan 11.00.

Sigurður taldi að öll skip væru í vari og vissi ekki af neinu á siglingu fyrir Norðurlandi. Hann sagði að menn hafi gengið vel frá bátum og skipum í höfninni áður en veðrið brast á. Vakt var við höfnina og eins og voru margir eigendur báta á ferli vel fram yfir stórstraumsflóðið. Þá fór Sigurður aftur á stjá síðar í nótt, eins og hann er vanur að gera þegar er vont veður.

Hann sagði menn óttast mest að það verði mikið sog í höfninni. Þess gætti aðeins í nótt en ekki svo mikið að hætta stafaði af. 

„Það hefur verið leiðindaveður, en sloppið samt tiltölulega vel,“ sagði Guðbrandur J. Ólafsson, aðalvarðstjóri á Siglufirði. Hann sagði að ófært væri úr bænum og Múlinn ófær. Hann taldi að fært væri til Ólafsfjarðar enda leiðin að mestu „innanhúss“.

Guðbrandur sagði að minna hafi snjóað hjá þeim en inni í Eyjafirði og ekki mikill snjór á svæðinu. Allt var orðið fært innanbæjar á Siglufirði./////þetta er sennilega? með því mesta sem þarna hefur mælst og þó maður ekki vita það fyrir víst en svona veður gerist ekki oft ,en kemur fyrir þegar svona stendur á að saman fari stórstreymi og mikil veðurhæð,en þetta fer vonandi vel og engin slys það er númer eitt/Halli gamli  


mbl.is 12 m ölduhæð á Grímseyjarsundi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 14
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 1045778

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 47
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband