Steingrímur gríðarlega bjartsýnn/held að þeim sé að fækka sem eru honum sammála???

Steingrímur gríðarlega bjartsýnn
Innlent | mbl.is | 12.1.2011 | 23:28

Fremur fámennt var á fundi VG á Egilsstöðum í kvöld.Steingrímur J. Sigfússon formaður Vinstri grænna og Þuríður Backman þingmaður flokksins fluttu tölu og sátu fyrir svörum á fyrsta fundinum í fundarherferð VG um landið sem fram fór á Egilsstöðum í kvöld. Tíu manns sátu fundinn þar sem Steingrímur talaði um ríkisfjármálin og stöðu landsbyggðarinnar. Hann tók sérstaklega fram að hann væri gríðarlega bjartsýnn og að 2011 væri ár uppbyggingar.
og tók sérstaklega fram að hann væri gríðarlega bjartsýnn. Hann sagði að það yrði að viðhalda stöðugleika á vinnumarkaði og í pólitík næstu tvö til þrjú árin svo allt fari vel.

Aðeins var þjarmað að honum varðandi stöðu landsbyggðarinnar, niðurskurð og  framkvæmdir í sveitafélaginu. Hann nefndi að ekki væri samstaða um að taka dýrari framkvæmdir á suðvesturhorninu fram fyrir vegabætur á landsbyggðinni. Hann lýsti því líka yfir að hann ætlaði ekki að selja í Landsbankanum á meðan hann væri fjármálaráðherra, að stefna sín væri að ríkið ætti einn kjölfestubanka og að hann ætlaði að styrkja sparisjóðina út á landi til þess að menn þyrftu ekki að sækja allt sitt fjármagn suður.

Steingrímur var líka gagnrýndur harkalega fyrir að allt vald væri að færast suður og voru nefnd dæmi um það. Spurt var eftir góðu vinstri-stefnunni og einn fundargestur benti á að Samfylkingin væri bara markaðsflokkur og ríkisstjórnin væri að stefna öllu í sama farið og var.

Steingrímur lauk fundinum á þeim orðum að rústabjörguninni væri nú að mestu lokið og nú væri hægt að fara að byggja upp.//////það er leiðinlegt að þurfa að vera ósammála S.J.S. um eginlega flest,sem hann segir Þarna og er að verja,auðvitað var þetta erfitt engin að gera litið úr því als ekki en aðferðirnar eru svo rangar sem getur verið !! ekki að segja að ekkert hafi verið gert en það er allt of litið og ekkert gert til að koma okkur i gang aftur verklega ,það vantar vinnu og fólkið þarf að lifa á hverju??? það vantar framkvæmdir sem skila okkur arði og framlegð og Hagvexti við biðum eftir því,en það er allt stoppað hja´V.G. ekki má virkja það verður að ger það svo eru nógir til að kaupa orkuna ekki endanlega Álver nema þessi 2 svo eitthvað allt annað,en meðan þetta verður svona er algjört stopp á allt,að láta  bara peninga i sparisjóði uppá milljarða til hvers spyr maður bara/Halli gamli


mbl.is Steingrímur gríðarlega bjartsýnn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 1045710

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband