Þrjár flöskur á nærri 900.000/ þetta þætti að góð saga, í sarp þeirra sem vilja Útgerðina feiga!!!

Þrjár flöskur á nærri 900.000
Innlent | mbl.is | 15.1.2011 | 14:44

Afmælisflaska með 50 ára gömlu Macallan viskíi seldist í...Þrjár vínflöskur, sem kostuðu samtals á níunda hundrað þúsund krónur, seldust í Fríhöfninni í Leifsstöð í vikunni. Um var að ræða tvær skoskar Macallan maltviskí og eina koníaksflösku. Fréttavefurinn Víkurfréttir greinir frá þessum dýrmætu dropum sem útgerðarmaður einn keypti á einu bretti.
"Elsta flaskan var frá árinu 1996 og var þá 50 ára afmælisútgáfa frá þessum þekkta maltviskí framleiðanda. Var því orðin 65 ára gömul. Hún seldist á rétt tæpar 400 þús. kr. Önnur flaska af Macallan gerð seldist á um 300 þús. kr. og svo fór koníaksflaskan á um 100 þús. kr. Flöskur af þessari gerð fara á stórar upphæðir í útlöndum og eru gjarnan seldar á uppboðum, m.a. hjá Sothebys,“ segir í frétt Víkurfrétta.

Flöskurnar dýru höfðu verið til sölu í Fríhöfninni í 15 ár en ekki selst fyrr en nú. Þótt sumum kunni að vaxa þessar tölur í augum þá má geta þess að flaska af 50 ára gömlu Macallan viskíi seldist á uppboði hjá McTear's uppboðshúsinu í Glasgow fyrir 11.750 sterlingspund eða tæplega 2,2 milljónir króna. Það er hæsta verð sem greitt hefur verið fyrir flösku af brenndu áfengi í þessum flokki, að sögn vefjarins Luxury Launches. /////svona til  gamans og alvöru er þessi saga sem er náfurulega sönn,góð i sarp þeir sem eru að níða niður Útgerðamenn og segja þar sögur sem auðvitað margar eru sannar,um bruðl og eyðslu,en það er svo að svona sögur voru hér áður sagðar um nokkra heildsala og fleiri sem bárust mikið á hér áður/en svona gamanlaust er þetta í raun fjárfesting sem gæti stór borgað sig ekki spurning,ef vel á haldið og selt á uppboði,en þessu verður ábyggilega komið í söguform ekki spurning/Halli gamli 


mbl.is Þrjár flöskur á nærri 900.000
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband