Þingmenn hafi ekki afskipti af bönkunum/ í þessu dæmi hlýtur það að vera !!!!!

Þingmenn hafi ekki afskipti af bönkunum
Innlent | mbl.is | 17.1.2011 | 15:59

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson í ræðustóli. Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, sagði á Alþingi í dag, að þannig væri búið um hnútana að ekki væri ætlast til að þingmenn væru með einum og öðrum hætti að hafa afskipti af bönkunum.

Nokkrar umræður urðu á Alþingi um svar, sem Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, fékk frá fjármálaráðherra um sölu Landsbankans á fyrirtækjum. Í svarinu eru veittar upplýsingar, sem gefnar voru í fréttatilkynningu á sínum tíma og síðan segir, að NBI hf.–Landsbankinn telji sér almennt ekki skylt að svara fyrirspurnum alþingismanna um önnur málefni en þau sem teljast opinber.

„Í stuttu máli er svarið svona: Þingheimi kemur þetta ekki við," sagði Guðlaugur Þór. 

Jóhanna sagði, að settar hefðu verið eftirlitsnefndir bankasýsla og slitastjórnir til að hafa eftirlit með bönkunum. Þá minnti hún á, að Davíð Oddsson hefði þegar hann var forsætisráðherra, látið Stefán Má Stefánsson, vinna mikla skýrslu um einkavæðingu. Þar hafi komið fram að þingmenn ættu engan rétt á að fá upplýsingar innan úr einkavæddum fyrirtækjum.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, þingmaður Framsóknarflokksins, sagði gríðarlega mikilvægt að forsætisráðherra hefði lent í algerri mótsögn við sjálfa sig. Hún hefði lýst því yfir í svari við fyrirspurn til sín fyrr í dag, að allt ferlið varðandi sölu á fyrirtækjum yrði að vera opið og gagnsætt.

 „Hún segir núna ítrekað að það sé engar upplýsingar að fá um þessi mál, þetta séu trúnaðarupplýsingar innan úr bönkunum og allt sé þetta Davíð Oddssyni að kenna. Getur ekki virðulegur forseti (Alþingis) beitt sér fyrir því, að vald Davíðs Oddssonar yfir ríkisstjórninni minnki, því forsætisráðherra hefur margoft lýst því yfir að hana langi til að gera svo margt en alltaf kemur Davíð Oddsson og stoppar það," sagði Sigmundur Davíð./////var að horfa á þetta og það er sko ekki hægt að bjóða mönnum uppá svona leikaraskap ,auðvitað er gott að haf gaman af hlutunum annað slagið,en ekki i svona alverlegum málum,það er ekki ofsögum sagt um tvískyndingin þarna að tala tungum tveim og kenna svo Davíð Oddssyni um allt i svörum sínum ,eins og Jóhanna gerði i dag!!!!/svona  allra á milli heldur maður að það sé allra hagur að þessi rókisstjorn  fari frá og það verði boðað til kosninga ekki spurning,er að ekki fólkið sem ræður þá,/Halli gamli


mbl.is Þingmenn hafi ekki afskipti af bönkunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband