Segja borgaryfirvöld ekki hafna veggjöldum/Besti og Samfylging í pressu ????

Segja borgaryfirvöld ekki hafna veggjöldum
Innlent | mbl.is | 18.1.2011 | 16:33

Borgarstjórnarfundur í Ráðhúsinu. Mynd úr safni. Borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins segir að meirihluti Besta flokksins og Samfylkingarinnar hafi ekki treyst sér til að mótmæla fyrirhuguðum vegtollum á höfuðborgarsvæðinu á fundi borgarstjórnar í dag.

Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins hafi lagt fram tillögu þess efnis og viljað að borgarstjórn myndi senda ríkisstjórninni og Alþingi skýr skilaboð um að slík tvöföld skattheimta sé ekki sanngjörn gagnvart borgarbúum, en meirihlutinn hafi kosið að vísa tillögunni óafgreiddri til skoðunar hjá umhverfis- og samgönguráði. Þetta segir í tilkynningu frá borgarstjórnarflokki Sjálfstæðisflokksins.

Tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks um ályktun borgarstjórnar vegna veggjalda er svohljóðandi:

„Borgarstjórn skorar á ríkisstjórn og Alþingi að láta ekki verða af hugmyndum um að leggja á veggjald til viðbótar við þá skatta og gjöld sem íbúar greiða nú þegar. Borgarstjórn er ekki andsnúin því að veggjöld séu skoðuð sem fjármögnunarleið vegna samgöngumannvirkja, (t.d. í sérstökum tilvikum þegar íbúar hafa val um aðra akstursleið) en telur rangt að innheimta þann kostnað tvöfalt með hækkun skatta og sérstöku veggjaldi.

Hanna Birna Kristjánsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn sagði í ræðu sinni nauðsynlegt að borgarstjórn bregðist við þeirri umræðu sem undanfarið hefur verið um sérstök veggjöld til viðbótar stöðugt hækkandi sköttum og gjöldum.  Hún benti á höfuðborgarsvæðið hefði alltof lengi setið eftir við úthlutun fjármagns vegna samgöngubóta og að í vegaáætlun sem nær til ársins 2012 væri hlutfall höfuðborgarsvæðisins í þeirri úthlutun margfalt lægri en það sem eðlilegt gæti talist, þrátt fyrir að um 63% íbúa séu búsettir á þessu svæði. 

Hanna Birna benti á að það væri óásættanlegt að íbúar þurfi að greiða vegatolla til viðbótar við þau gjöld sem núþegar eru innheimt með bifreiðar- og bensíngjöldum.  ,,Það gengur einfaldlega ekki að ríkisvaldið komist upp með það að margskattleggja almenning í þessu landi, fyrst með því að hækka alla skatta og öll gjöld en síðan með því að bæta sérstöku veggjaldi ofaná.  Vilji menn skoða það að fjármagna samgöngubætur með sérstöku veggjaldi verður það að gerast þannig að aðrir skattar lækki á móti.  Núverandi ríkisstjórn virðist nú varla líkleg til þess.“/////þarna kemur i ljós samstaðan og hræðslan við ríkisstjórnina ekki spurning að þarna er varaformaðu samfylkingar sem stjórna málum!!! eða fara listamen þessir sem styðja þessa flokka og fl. aldrei útfyrir 101 eða hvað??? þetta er mjög svo alverlegt mál fyrir okkur öll sem erum bilandi og alla reyndar sem eitthvað fara og ferðast,enda ekki framkvæmanlegt als ekki/Halli gamli


mbl.is Segja borgaryfirvöld ekki hafna veggjöldum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Er þetta ekki staðfesting á því, sem komið hefur fram, að Landráðafylkingin hafi staðið að stofnun Bezta flokksins???????

Jóhann Elíasson, 18.1.2011 kl. 17:00

2 identicon

Þessir listamenn fara ekki út fyrir 101, svo það mætti þess vegna setja vegtolla milli póstnúmera fyrir þeim.

Ef fram fer sem horfir þá mun ríkið taka launin okkar og úthluta okkur matarmiðum í staðin.

Njáll (IP-tala skráð) 18.1.2011 kl. 17:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 1045801

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 47
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband