Heilbrigðismál á krossgötum/það á að bylta því eins og öðru ,ekki spurning!!!

Heilbrigðismál á krossgötum
Innlent | mbl.is | 24.1.2011 | 13:21

Landspítali Háskólasjúkrahús Hringbraut. Stóra áskorunin í heilbrigðismálum á tímum efnahagskreppu er að ná fram aukinni skilvirkni, þrátt fyrir aðhald í rekstri stofnana. Þá kallar þróun í átt til aukinnar sérhæfingar á stærri einingar, endurskipulagning sem bættar samgöngur styðja við. Þetta kom fram í ræðu velferðarráðherra á læknadögum.

Ræðan var að vísu ekki flutt af Guðbjarti Hannessyni velferðarráðherra heldur var hún flutt af staðgengli hans, Sveini Magnússyni. Sá Guðbjartur sér ekki fært að mæta vegna fundahalda ríkisstjórnarinnar.

Er þessi áhersla ráðherra - að stækka rekstrareiningar í heilbrigðiskerfinu - í samræmi við málflutning Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra sem hefur boðað að einingar verði stækkaðar.

Í ræðutexta ráðherra kom einnig fram að góður árangur hefði náðst í lækkun lyfjakostnaðar, árangur sem vakið hefði athygli utan landsteinanna. Þá var vikið að nokkrum atriðum í lýðheilsumálum, svo sem stöðugt lægri tíðni reykinga.

Ræðan opnaði málþingið Heilbrigðisþjónusta á krossgötumá læknadögum á Hilton hóteli Nordica í dag en frummælendur voru Geir Gunnlaugsson landlæknir, Birna Jónsdóttir, formaður Læknafélags Íslands, Björn Zoëga, forstjóri Landspítala, Gróa Jóhannesdóttir, formaður Læknaráðs Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri og Steingrímur Ari Arason, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands. Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra komst ekki á fundinn vegna anna og var Sveinn Magnússon sem fyrr segir staðgengill hans.////stefna þessarar ríkisstjornar er að bylta öllu,enda fær hún byr undir baða vængi til þessa að þeirra áliti sem segja að ekkert hafi verið i lagi ,er það þetta sem við eigum að láta yfir okkur ganga,að koma okkur á það að þrengja að  öllu i þessum geira sem hægt er og meir en það?? það er þegar á fullu verið að ganga i þetta og að læknar og þeirra lið skuli fylgja þessu eftir er skrítið mal og vel það,"en byltingin étur börnin sýn "segir máltækið og það mun hún gera ekki spurning/Halli gamli


mbl.is Heilbrigðismál á krossgötum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 14
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 1045793

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband