Bretland: Mesta lífskjararýrnum frá kreppunni miklu/hvað segir þetta okkur kreppan er víðar en á Íslandi !!!

Bretland: Mesta lífskjararýrnum frá kreppunni miklu
Viðskipti | mbl.is | 26.1.2011 | 9:21

Breskir neytendur hvattir til þess að versla. Mervyn King,...Lífskjör í Bretlandi hefur ekki jafn hrakað jafn mikið og hratt frá því á þriðja áratug síðustu aldar. Að sögn Mervyn King, seðlabankastjóra Bretlands, þá heldur launaþróun ekki við verðbólgu og ráðstöfunartekjur heimila nú eru þær sömu og árið 2005. Slík
lífskjararýrnun hefur ekki sést í Bretlandi í níutíu ár.

Lífskjör í Bretlandi hefur ekki jafn hrakað jafn mikið og hratt frá því á þriðja áratug síðustu aldar. Þetta sagði Mervyn King, bankastjóri Englandsbanka, í ræðu sem hann hélt í gær í kjölfar þess að hagtölur sýndu að breska hagkerfið dróst saman á síðasta ársfjórðungi í fyrra. Á sama tíma hélt verðbólga áfram að aukast og er nú langt yfir 2% verðbólgumarkmiði Englandsbanka.  Landsframleiðslan dróst saman um 0,5% á tímabilinu en verðbólga mælist nú tæplega 4%.

Í ræðu sem King hélt í Newcastle í gær kom fram að Englandsbanki gæti vart hækkað stýrivexti á komandi misserum vegna hins mikla slaka í hagkerfinu um þessar mundir. Af þessum ástæðum myndi efnahagslægðin bitna hart á þeim sem hafa sýnt ráðdeild og byggt upp sparnað. Að sögn breska blaðsins féllu ráðstöfunartekjur breskra heimila um 12% í fyrra og búist er við að áframhald verði á þeirri þróun í ár. Þrátt fyrir það sagði King í ræðu sinni að Englandsbanki gæti hvorki né ætti að beita peningamálastefnunni til þess að afstýra þeirri þróun. 

King sagði að það væri misskilningur að ætla að Englandsbanki hefði getað hækkað stýrivexti á sínum tíma til þess að koma í veg fyrir að verðbólgan kæmist á stað. Stýrivextir hafa verið 0,5% frá því í mars árið 2009. Verðbólga mældist hinsvegar meira en 100 punktum yfir verðbólgumarkmiði bankans allt síðasta ár og sagði King í ræðu sinni að útlit væri fyrir að hún yrði á bilinu 4-5% á næstunni. Hann sagði að ef að stýrivextir hefðu verið hækkaðir á umtalsvert þá myndi verðbólga fara minnkandi á þessu ári en hinsvegar hefði fórnarkostnaður þeirrar aðgerðar brotist fram í enn meiri samdrætti landsframleiðslu, meira atvinnuleysi og rýrnun lífskjara hefði orðið enn meiri en nú er.////þetta er svo að kreppan er viðar en á Íslandi og ekkert smá ,svo i framhjáhlaupi má kom því að að þarna var verkamannflokkur við stjórn siðastu ár og er það eins og með sjálfstæðisflokk her allt honum að kenna??ekki það að Jóhanna  Forsætisráðherra okkar var þarna um daginn að kenna Forsætiráðherra Breta karlaorlof hefði kannski getað sagt honum fleira til að redda hlutunum,en svona án gamans er þetta efnilegt að ganga i ESB meðan þessi lönd eru i sömu krísu og við/Halli gamli


mbl.is Bretland: Mesta lífskjararýrnum frá kreppunni miklu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 1045796

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 48
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband