Forsætisráðherra haldi ró sinni/þó fyrr hefði verið,svíkur alla gerða smaninga !!!!!

Forsætisráðherra haldi ró sinni
Innlent | mbl.is | 29.1.2011 | 17:37

Mynd 523259 Samtök atvinnulífsins mælast til þess að forsætisráðherra haldi ró sinni, í yfirlýsingu sem samtökin senda frá sér í kjölfar ræðu Jóhönnu Sigurðardóttur í dag þar sem hún lét þung orð falla um sjávarútveginn. Árásir forsætisráðherra á LÍÚ séu fordæmalausar og eigi sér engar málefnalegar forsendur.Sjávarútvegsfyrirtæki hafi starfað eftir lögum um stjórn fiskveiða sem voru mótuð í tíð ríkisstjórna sem forsætisráðherra sat í og ber því mikla  ábyrgð á. „Löggjöfin um stjórn fiskveiða hefur löngum verið deiluefni en endurskoðunarnefnd á vegum núverandi ríkisstjórnar náði víðtæku samkomulagi um grundvallarbreytingu á stjórnkerfinu með aðild stjórnarflokkanna, tveggja stærstu stjórnarandstöðuflokkanna og allra helstu hagsmunasamtaka sjávarútvegsins bæði fyrirtækja og starfsfólks," segir í yfirlýsingunni.

Í yfirlýsingu SA segir ennfremur:

 

  • Samtök atvinnulífsins

    Samtök atvinnulífsins

 

„Sáttin í endurskoðunarnefndinni varð um svokallaða samningaleið þar sem byggir á því að nýtendur auðlindarinnar geri formlega tímabundna samninga við ríkið um nýtingarréttinn.  Í því felst fullt forræði ríkisins á fiskistofnunum sem enginn deilir um að séu eign þjóðarinnar.  Helstu álitamálin sem þarf að útfæra snúa að tímalengd og endurnýjunarákvæðum samninga, gjaldtöku og hversu hátt hlutfall af heildarafla eigi að binda í samninga.  Niðurstaðan í þessum málum hefur verulega þýðingu og samtök sjávarútvegsfyrirtækja hafa ítrekað óskað eftir að fá aðild að frekara sáttastarfi í því skyni að útfæra samkomulagið í endurskoðunarnefndinni.  Ekki hefur verið orðið við þessum óskum og heldur hefur öll meðferð málsins alið á tortryggni sem forsætisráðherra viðheldur nú með ómaklegum árásum sínum.

Núverandi ríkisstjórn hefur einstakt tækifæri til þess að leiða til lykta langtímasátt um stjórn fiskveiða.  Það þarf einstakan klaufaskap og hæfileikaleysi til forystu til þess að klúðra málinu og forsætisráðherra er í offorsi sínu á slíkri braut.

Samtök atvinnulífsins eru og hafa alltaf verið tilbúin til þess að vinna með núverandi ríkisstjórn að því stóra hagsmunamáli allrar þjóðarinnar að komast út úr því kreppuástandi hér ríkir og birtist í bágum hag fyrirtækja og heimila og atvinnuleysi 14000 manns.  Samtök atvinnulífsins hafa lagt fram tillögur við viðsemjendur sína á vinnumarkaðnum og ríkisstjórnina um atvinnuleið.  Hún byggir á því að sækja fram með fjárfestingum í atvinnulífinu, fyrst og fremst í útflutningsgreinum, skapa ný störf í bráð og lengd, auka atvinnu og minnka atvinnuleysi, jafnframt því að auka kaupmátt og treysta lífskjör til lengri tíma.  Óhugsandi er að fara atvinnuleið úr út kreppunni án þess að sjávarútvegurinn, helsta útflutningsgreinin og ein meginstoð samfélagsins, geti tekið fullan þátt í þeirri sókn.

Forsætisráðherra á ekki að hræðast viðfangsefnin eins og ræða hennar á fundi Samfylkingarinnar ber með sér.  Ísland þarf á því að halda að forsætisráðherra þjóðarinnar, Jóhanna Sigurðardóttir, taki ódeig þátt í því að leysa þau mál sem upp koma, þar á meðal stjórn fiskveiða, í stað þess að úthrópa atvinnulífið."//////hvað er í gangi þarna hjá þessu liði að ráðast a´útgerðir og útgermenn og gefa þeim bara langt nef,og að vinna i  mótsögn við allt sem .eir hafa gert og færa okkur björg i bú ,hvar værum við nú stödd án þeirra ,það er eins og með allt annað að það er alltaf eitthver sauður i hverri stöðinni en það er svo alstaðar jafnvel i henni pólitík!! en við þetta er ekki búið að setja alla í sama sauðahúsið,alla i þetta er yfirleitt dugnaðarforkar og vel það,en nú að að taka þetta allt af þessum mönnum og sitja allt i uppnam,það hefði einhverntiman látið fjúka að þetta væri landráðafólk,ekki síst þetta að koma okkur i ESB til að þeir taki þetta allt i sinar hendur/segið af ykkur Jóhanna og C/O/Halli gamli


mbl.is Forsætisráðherra haldi ró sinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 1045798

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband