Lófaklapp í lok ræðu Bjarna/Formaður heldur sínu striki!! ekki samstaða um þessa uppgjöf!!!

Lófaklapp í lok ræðu Bjarna
Innlent | mbl.is | 5.2.2011 | 13:52

Geir H. Haarde er á meðal fundargesta í Valhöll.Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, hefur lokið máli sínu, þar sem hann fjallaði um Icesave og sína afstöðu í málinu. Var honum klappað lof í lófa í Valhöll. Eitthvað var þó um baul. Bjarni segist vilja breyta rétt og ná skynsamlegri niðurstöðu í Icesave sem sé þjóðinni til heilla.

Hann segir að Sjálfstæðisflokkurinn hafi ávallt verið hið ábyrga afl í íslenskum stjórnmálum. Hann njóti trausts vegna þessarar afstöðu.

Bjarni sagði ljóst, að traust til stjórnmálaflokka hafi glatast í hruninu. Menn vinni aftur traust með því að taka ábyrga afstöðu í málum  sem varða þjóðina.

Hann segir að menn breyti ekki rétt rétt með því að treysta á sundrunguna á stjórnarheimilinu. Flokkurinn geti ekki treyst á að jafn alvarlegt mál sem þetta snúist um hvernig staðan sé á stjórnarheimilinu.

Flokknum hafi farnast best þegar hann hafi staðið fast á rétti sínum. Bestu niðurstöður hafi komið í hús þegar flokkurinn hefur hvergi gefið eftir. Þetta þýði hins vegar ekki að það sé ekki hægt að gera samkomulag  af nokkrum toga.

Bjarni segist vita að þjóðin muni fagna þessari farsælu lausn. Hroðalegustu svikin séu þau að svíkjast um að semja.

Bjarni segist ekki taka þátt í pólitískum hráskinnaleik og varpi ekki fyrir róða heilindum og framtíðarsýn í glímunni við ríkisstjórnina. Var Bjarna klappað lof í lófa, eftir að hann lét þessi ummæli falla.  

Sagði hann að þessir nýju samningar létti byrðina verulega. Með þá í farteskinu sé Íslendingum óhætt að horfast í augu við framtíðina óttalaust. Hann vilji binda enda á óvissuna og leiða málið til lykta. Annað séu svik við samvisku og sannfæringu og kjósendur.//////það má náttúrlega færa fyrir því rök að ekki er allt tæk

t i þjóðaratkvæðagreiðslu satt er það en svo mikið er búið að að þrasa um þetta mal að flestir vita hvað er

 um fjallað,það ber að segja sannleikan og ekkert annað,ef eitthvað annað hangir á spýtunni með að samþykkja

 þetta sem við viljum ekki þurfa að borga,en maður segir samt honum til hróss Formanninum að hann stendur

 a´sinu og vel það,hvort það dugir til að lægja öldur er maður ekki viss um als ekki,en þetta mun  koman í ljós fyrr

 en seinna ,  en samt er maður hlynntur þessa að þjóðin ákveði þetta ennþá allavega/Halli gamli 


mbl.is Lófaklapp í lok ræðu Bjarna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 44
  • Frá upphafi: 1045667

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 41
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband