ESB býður aðstoð við að aflétta gjaldeyrishöftum/allt til reyðu fyrir Ísland !!!!!

ESB býður aðstoð við að aflétta gjaldeyrishöftum
Innlent | mbl.is | 7.2.2011 | 16:11

Árni Páll Árnason og Olli Rehn í Brussel í dag.Olli Rehn, sem fer með viðskipta- og peningamál í framkvæmdatjórn Evrópusambandsins, sagði á blaðamannafundi í Brussel í dag að ESB væri reiðubúið til að veita Íslandi tæknilega aðstoð við að aflétta gjaldeyrishöftunum.
Það er mjög mikilvægt að íslenska ríkisstjórnin er að undirbúa áætlun um að aflétta gjaldeyrishöftunum," hefur Bloomberg fréttastofan eftir Rehn. „Við erum reiðubúin til að veita tæknilega aðstoð við þessa vinnu."

Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra, átti fund með Rehn í Brussel í dag og sagði eftir þann fund, að það væri ekki auðvelt að aflétta gjaldeyrishöftum. „Við þurfum öll þau ráð og alla þá aðstoð sem við getum aflað," sagði Árni Páll á blaðamannafundinum með Rehn. „Það er mikilvægt að við reynum að tryggja að hin neikvæðu áhrif af því að aflétta gjaldeyrishöftunum verði eins lítil og mögulegt er." ////leynt og ljóst, er verið að koma okkur þarna inn með öllum ráðum ,ekki spurning ,og öllum brögum beitt þetta er ekki einleikið, enda sjá að allir sem vilja, að það er gert ráð fyrir okkur þarna inn ekki annað!! en við erum bara að skoða hvað við fáum og það verður ekki beysið sem eftir er gefið sem við höfum heyrt og séð!!! það' þýðir ekkert að vera að riftast um það sem við vitum að það verður ekkert gefið þarna við bara borgum og ekkert múður,og það sem við fáum til baka eru fjötrar ekkert nema það og aftur það,annað er með hvort i framtíð við skiptum um gjaldmiðil það er önnur saga/Halli gamli


mbl.is ESB býður aðstoð við að aflétta gjaldeyrishöftum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Erla Magna Alexandersdóttir

 Við áttum einusinni baráttumenn sem vildu koma okkur undan Danskri einokun- nú eigum við landráðamenn á Alþingi sem vilja selja okkur í ánauð ! Er ekki timi á ALvöru byltingu ? Eða ætlum við að búa við það sama og  KÚBA ?

Erla Magna Alexandersdóttir, 7.2.2011 kl. 22:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 1045718

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband