Jón Steinar víki sökum vanhæfis/hefði nú haldið að það væri nær að Gísli víki úr synu embætti!!!

Jón Steinar víki sökum vanhæfis
Innlent | mbl.is | 8.2.2011 | 16:50

 Gísli Tryggvason gerir þá kröfu að Jón Steinar Gunnlaugsson dómari við Hæstarétt víki sæti vegna vanhæfis við afgreiðslu á beiðni um endurupptöku, þar sem farið er fram á að dómstóllinn endurskoði ákvörðun sína um ógildingu kosninga til stjórnlagaþingsins.

Fram kemur í tilkynningu frá Gísla að þessu til rökstuðnings sé vísað til tilgreindra orða hans í viðtali í þættinum Návígi í Ríkissjónvarpi 1. febrúar sl.

Staðhæfing Hæstaréttar um að „[a]lkunna er að sú aðferð er oft viðhöfð við að stemma af fjölda kjósenda sem komið hafa í kjördeild að rituð eru nöfn kjósenda í þeirri röð sem þeir koma og greiða atkvæði,“ þyki endurupptökubeiðanda ekki studd neinum rökum. En þessi fullyrðing virðist ein af meginforsendum ákvörðunar Hæstaréttar.

Óskað hefur verið eftir því að Hæstiréttur endurskoði ákvörðun sína um ógildingu kosningar til stjórnlagaþings 27. nóvember sl. eða fyrirskipi endurtalningu kjörseðla.

Gísli hefur farið fram á endurupptöku ákvörðunar Hæstaréttar um ógildingu kosningar til þingsins, sbr. ákvörðun Hæstaréttar 25. janúar sl.

„Beiðnin er rökstudd með vísan til ákvæða stjórnsýslulaga um ófullnægjandi eða rangar upplýsingar um málsatvik, um meðalhóf og um rannsóknarreglu.

Gerð er sú aðalkrafa að kosningin verði talin gild þrátt fyrir vissa formgalla. Til vara er þess farið á leit að talningin ein verði ákvörðuð ógild og Hæstiréttur fyrirskipi endurtalningu atkvæða fyrir opnum dyrum. Áður verði öll auðkenni afmáð af kjörseðlum og skipaðir fulltrúar frambjóðenda til að vera viðstaddir talninguna, sem fari fram fyrir opnum dyrum,“ segir í tilkynningu frá Gísla. /////ja hvar skollin er þetta nú ekki að koma úr hörðustu átt að þessi maður af öllum sem ekki hefur staðið sig i starfi sem umboðsmaður neitakanda að minu áliti, allavega segir þetta,Jón  Steinar er réttur maður á rettum stað sem hefur ekkert lengur með pólitík að gera ,en má tjá sig um það sem ekkert er um mál sem eru i gangi allt annaðs em betur mætti fara ,á hann auðvitað að tala um eins og aðrir þessir hæstaréttardómara,eiga ekki að vera lokuð bók lokaði inn i múr og mega ekki tja´sig um menn og malefni en auðvitað ekki dóma sem eru i gangi/en svona er þetta allt gert torkennilegt ef menn þora að stja´sig og þar koma men ekki að tómum kofa hjá Jóni Steinari  /Halli gamli
 


mbl.is Jón Steinar víki sökum vanhæfis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Gunnarsson

Jón Steinar er bullandi vanhæfur í öllum þeim málum sem snerta pólitíska gerninga. Sjálfstæðismenn voru frá upphafi andvígir þessum kosningum.

Man enginn nema ég eftir blaðaskrifum Jóns Steinars þegar Ólafur Ragnar vísaði fjölmiðlafrumvarpinu til þjóðarinnar?

Jón staðhæfði að forsetinn hefði ekkert synjunarvald.

Og þetta eru sjallar glaðir með að hafa  í Hæstarétti.

Árni Gunnarsson, 8.2.2011 kl. 18:12

2 Smámynd: Haraldur Haraldsson

'Arni enginn okkar er gallalaus,en samt misjafnt,en ef það telst gallað að vera sjálfstæðismaður erum við Jón Steinar það??Rökfastur maður og segir sínar meiningar,Einnig i dómum og lögum er það ekki það sem hann er mest hataður fyrir af andstæðingum/Kveðja

Haraldur Haraldsson, 8.2.2011 kl. 20:31

3 identicon

Hæstaréttadómarar, allir nema einn, eru skipaðir af sjálfstæðismönnum.

Mundir þú Haraldur, treysta Hæstarétti ef allir dómarar væru skipaðir af Samfylkingunni?

Svavar Bjarnason (IP-tala skráð) 8.2.2011 kl. 20:46

4 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Já Svavar það mundi maður gera menn eiga ekki að haf þar póltík að skoðunum þegar og ef þeir gangast undir eyð að því /þetta er bara fyrirsláttur og ekkert annað/Kveðja

Haraldur Haraldsson, 8.2.2011 kl. 20:53

5 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Sæll Halli minn.

 Nú er ég svo innilega sammála Árna Gunnarssyni eins og svo oft áður.

 Hlutlausir hafa engan rétt nema þeir séu skoðanalausir liðhlaupar svikaranna. Í það minnsta verður maður að virða vald þeirra flokks-tryggu þræla, sem ekki þola sannleikann á þessum bloggvettvangi!

 Eða hvað á ég að halda? Ekki fæ ég lengur að blogga við fréttir á þessum heilögu síðum?

 þú hefur sagt að ég kveði fast að orði, og það er satt og rétt! En það er greinilega ekki leyfilegt af yfirvöldum þessa bloggvettvangs!

 Og þess vegna er þessi bloggvettvangur einskisnýtur fyrir þá sem kveða fast að og eru hlutlausir sannleiksberar, því lokað er á mín blogg við fréttum mbl!

 þvílíkt einliða spillingarlið!!!

 Hafðu það sem best Halli minn, þú ert heilsteypt og réttlát persóna á röngum réttlætis-vígvelli!

 M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 8.2.2011 kl. 20:56

6 identicon

Dómar eru ekki alltaf klippt og skorið samkvæmt lögbókum, heldur eru þeir mjög oft matsatriði. Slíkir dómar mótast þá að sjáfsögðu mjög af eigin skoðunum einstakra dómara.

Þetta er viðurkennt í Bandríkjunum, enda er fylgst mjög vel með hverjir eru ráðnir þegar dómarasæti losnar. Republikanar og Demokratar keppast því við að koma sínum mönnum að. En þessir flokkar hafa skipst mikið á um stjórnarsetu, svo jafnvægið í Hæstaréttinum hefur haldist viðunandi.

Af hverju eru íslenskir dómarar svona miklu fullkomnari en þeir bandarísku? Finnst þér mikið jafnvægi í okkar Hæstarétti?

Svavar Bjarnason (IP-tala skráð) 8.2.2011 kl. 21:12

7 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Þakka innlitið Anna Sigríður bloggvinkona/Finnst þér ekki ég kveða fastað ju það geri ir maður en samt vill engan meiða,en að vera i andstöðu er bara gaman ekkert varið i allir séu sammála, einnig ekki i henni póltík/einlægar kveðjur

Haraldur Haraldsson, 8.2.2011 kl. 21:17

8 Smámynd: Haraldur Haraldsson

kannski ekki með karla og konum,Svavar en að öðru leit allt í lagi ,en svona er þetta en búið að breyta ,og vonum að þar komi  þá betra en samt efins?*/Kveðja

Haraldur Haraldsson, 8.2.2011 kl. 21:21

9 identicon

Mein Gott! Auðvitað víkur Jón Steinar úr dómnum ef málið verður tekið upp á ný. Dómari sem lýsir yfir skoðun sinni opinberlega á máli getur ekki komið að því aftur. Ég á aftur á móti eftir að sjá dóminn endurskoða afstöðu sína, en óneitanlega er það óheppilegt að dómur geri jafn augljósa vitleysu í úrskurði sem á að vera endanlegur og Hæstiréttur gerði (þ.e. með skráningu kjósenda í röð sem "alkunna er" að tíðkast ekki). Slíkt varpar skugga á úrskurðinn hversu vel ígrundaður hann er að öðru leyti.

Pétur (IP-tala skráð) 8.2.2011 kl. 21:44

10 identicon

Mér fannst þú ekki hafa svarað því sem ég spurði um, Haraldur.

Af hverju eigum við ekki að viðurkenna það að Hæstiréttur er rammpólitískur og hallur undir ákveðin pólitíst sjónarmið?

Er ekki kominn tími til að taka upp aðrar aðferðir við ráðningar í Hæstarétt?

M.b.kv.

Svavar Bjarnason (IP-tala skráð) 8.2.2011 kl. 21:48

11 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Svavar skilgreindu þá póltíkin fyrir mér hvar er hún ekki??en ég stend með að öllum hæðaréttadómurum sem eru nú ekki spurning,þeir gera það þeim ber að dæma retta og að rétta skal vara rétt,það til annað kemur i ljós/Kveðja

Haraldur Haraldsson, 8.2.2011 kl. 23:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 48
  • Frá upphafi: 1045799

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 45
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband