Björgunarsveitir kallaðar út/ Veðrið mjög slæmt víða,en við erum þessu vön,og hjálparsveitir öflugar!!!

Björgunarsveitir kallaðar út
Innlent | mbl.is | 8.2.2011 | 21:52

Björgunarsveitir að störfum í óveðri.„Það er óvenjulítið af útköllum miðað við hversu slæmt veðrið er,“ sagði Ólöf S. Baldursdóttir upplýsingafulltrúi Slysavarnarfélagsins Landsbjargar í samtali við mbl.is um níuleytið í kvöld. Björgunarsveitir hafa verið kallaðar út í Hveragerði, Eyjum og á Kjalarnesi, Selfossi og Suðurnesjunum.
Í flestum tilvikum hafa björgunarsveitarmenn verið að festa lausar klæðningar og þakplötur á húsum og fjúkandi hluti, auk þess sem aðstoða hefur þurft bíla. Bátar hafa verið festir í höfnum en Landsbjörgu hafa ekki borist fregnir af miklu tjóni, enn sem komið er.

Vindhraði á mæli á Garðskaga á Reykjanesi  sýndi 40 hnúta um áttaleytið í kvöld og allt að 54 hnúta í hviðum, sem samsvarar 100km/klst.

 

  • Upplýsingaskiltið við Mosfellsbæ sýnir vel rokið á Vesturlandsveginum í kvöld.

    Upplýsingaskiltið við Mosfellsbæ sýnir vel rokið á Vesturlandsveginum í kvöld.

 

Aðspurð hvort aðstæður séu erfiðar fyrir björgunarmenn í svona veðrum segir Ólöf: „Já, þetta geta alveg verið hættulegar aðstæður því fjúkandi hlutir geta verið stórhættulegir.“

Enn víða óveður á vegum

Búið er að opna Hellisheiði, Þrengslin og Sandskeiði en þar er hálka og óveður samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Óveður er á Reykjanesbraut og á Kjalarnesi. Hálkublettir eru á flestum leiðum á Reykjanesi. Á Suðurlandi er hálka og óveður undir Eyjafjöllum og ekkert ferðaveður.  Hálka og skafrenningur er í kringum Hellu. Víða er snjóþekja, hálka eða jafnvel þæfingsfærð í uppsveitum.

Á Vesturlandi eru hálkublettir og óveður undir Akrafjalli og á Holtavörðuheiði, einnig er óveður undir Hafnafjalli og þar er ekkert ferðaveður. Óveður og þæfingsfærð er á Fróðárheiði. Þungfært og skafrenningur er um Bröttubrekku.  Á öðrum leiðum er hálka, snjóþekja og skafrenningur.

Á  Vestfjörðum er víða hálka, hálkublettir og skafrenningur. Ófært er um Kleifaheiði, þungfært er um Klettsháls og þæfingsfærð er um Hálfdán og Mikladal.

Á  Norðurlandi er hálka eða hálkublettir. Á Norðausturlandi  er víða hálka, snjóþekja og skafrenningur. Ófært er um Hófaskarð.

Á Austurlandi er komið óveður á Vatnsskarð eystra og á Fjarðarheiði. Snjóþekja og skafrenningur er víðast hvar. Á Suðausturlandi er hálka og óveður er í Öræfum.//þetta er hið versta vaður sem hefur komið i vetur lægðirnar dýpka og það er ekki gott,þetta rífur allt og tætir en við erum vön þessu og verðum að læra að festa allt sem hlægt er Íslendingar,samt kemur þetta sumum á óvart þó sé varað við þessu aftur og aftur,en svona er þetta bara og er von á annarri lægð litið mynni á Föstudag,en Skip hljóta að fara i var vonandi eða bara halda sjó uppí vind eða lensa,eins og sagt er!! en vonandi að menn taki sig á og fari að trúa veðurlýsingum betur/Halli gamli


mbl.is Björgunarsveitir kallaðar út
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 1045815

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 49
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband