Sex þúsund manns gegn Icesave/ Kjósum öll sem ekki viljum um þetta !!!!!

Sex þúsund manns gegn Icesave
Innlent | mbl | 13.2.2011 | 12:11

Merki síðunnar Kjósum!Nú hafa yfir sex þúsund manns ritað undir áskorun til Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, um að synja Icesave-lögunum staðfestingar, á vefsíðunni kjósum.is undir yfirskriftinni Samstaða þjóðar gegn Icesave. Þegar þetta er ritað hafa 6.050 manns skrifað undir.

Áskorunin er líka til Alþingis, um að hafna frumvarpinu.

Á vefnum er áskorunin sem fólk skrifar undir birt svohljóðandi:

„Ég skora á Alþingi að hafna frumvarpi um ríkisábyrgð vegna Icesave-reikninga Landsbankans. Ég heiti jafnframt á forseta Íslands, herra Ólaf Ragnar Grímsson, að synja því lagafrumvarpi staðfestingar, verði það samþykkt á Alþingi. Ég vil að þjóðin fái að úrskurða um þetta mál.“

Hægt er að skrifa undir á vefnum kjosum.is

Þegar þetta er ritað hafa 6.050 manns skrifað undir.

Ólafur Ragnar Grímsson verður gestur Egils Helgasonar í Silfri Egils hjá Ríkissjónvarpinu innan stundar og má gera ráð fyrir því að Icesave málið verði rætt í þættinum.//////Nú verðum við a vara dugleg að koma þessau á framfæri fyrst það á að samþykkja þetta á 'Alþingi verðum að refsa svikurum þar ekki spurning,allaveg mun ég stuðla að þessu ekki spurning,allir að kjósa á móti þessi ofríki/Halli gamli


mbl.is Sex þúsund manns gegn Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Þökkum stuðninginn.     kjósum.is

Guðmundur Ásgeirsson, 13.2.2011 kl. 12:53

2 Smámynd: Kristján P. Gudmundsson

Vonandi taka allir góðir Íslendingar við sér og taka þátt í undirskriftasöfnuninni kjósum.is (www.kjosum.is) svo að ráðamenn sjái sitt óvænna og hætti þessarri vitleysu kringum ICESAVE.

Kveðja, KPG.

Kristján P. Gudmundsson, 13.2.2011 kl. 13:12

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já ég vil líka hvetja fólk til að skrifa undir og vera samtaka í að forða börnunum okkar frá þessum klafa.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 13.2.2011 kl. 13:27

4 Smámynd: Magnús Ágústsson

buinn ad skrifa undir

Magnús Ágústsson, 13.2.2011 kl. 14:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 34
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband