Svisslendingar kjósa um byssueign/Við eigum að læra meir af Svísslendingum!!!

Svisslendingar kjósa um byssueign
Erlent | AFP | 13.2.2011 | 12:00

Byssur eru til margs nýtilegar. Svisslendingar kusu í dag um það hvort viðhalda ætti þeirri hefð að leyfa fólki að hafa byssur úr herþjónustu sinni heima hjá sér. Sviss er það land Evrópu þar sem algengast er að fólk noti skotvopn til að fremja sjálfsvíg, en það er þrefalt algengara þar en í öðrum löndum Evrópu að jafnaði.

Kjörstaðir verða opnir fram á miðjan dag, en flestir hafa nú þegar greitt atkvæði utan kjörstaðar. Fyrstu tölur birtust nú fyrir skammri stundu og bendir flest til þess að Svisslendingar hafi kosið að viðhalda þeirri hefð sinni að vopnaeign í heimahúsum sé algeng.

Atkvæðagreiðslan var knúin fram af nokkrum samtökum auk kirkjunnar og vinstriflokka, sem vilja að í stað þess að fólki leyft að hafa hergögnin heima hjá sér verði þau geymd í þar til gerðum vopnabúrum. Eins og staðan er núna mega menn halda vélbyssunni sinni jafnvel eftir að þeir hætta í hernum.

Þessi hefð var lengi vel hluti af landvarnarstefnu Sviss, sem byggði á því að gera innrás ófýsilegan kost, þar sem borgarar landsins, ekki síst karlmenn, væru alltaf tilbúnir fyrir átök ef til þess kæmi.

Opinber gögn sýna að um það bil tvær milljónir skotvopna frá hernum eru á heimilum fólks í Sviss, en í landinu búa um sjö milljónir manna. Áætlað er að einnig séu þar um 240.000 óskráðar byssur.

AFP fréttastofan tók einn borgara tali. Xavier Schwitzgübel, hermann sem er nú að sinna herskyldu sinni. Hann bendir á að það sé hefð fyrir byssueign í Sviss. „Ef jáið verður ofan á er hætta á því að það gangi af landinu dauðu,” segir hann.

Svissneskt þjóðfélag byggist á trausti á milli borgaranna og ríkisins. „Ef við tökum vopnin af fólki, sem eru táknmynd þessa trausts, þá þýðir það að við séum að rjúfa hið heilaga samband á milli borgarans og lýðræðisins.”

Ríkisstjórn landsins hefur líka hvatt til þess að byssubanninu verði hafnað. Hún heldur því fram að sú löggjöf sem þegar er í gildi í landinu tryggi viðunandi og fullnægjandi vernd borgaranna gegn misnotkun skotvopna.
Það sem hins vegar vegur á móti er að skotárásir hafa orðið í landinu, eins og árið 2001 þegar fjórtán manns voru skotin til bana á þingfundi í Zug-kantónunni.

Skoðanakannanir sýna að mjög skiptar skoðanir eru á málefninu. 47% styðja bannið en 45% eru á móti því. 8% eru óákveðnir. Til að hljóta samþykki þarf bannið að fá stuðning meirihluta kjósenda og stuðning meirihluta kantónanna, sem eru þau svæði eða stjórnsýslueiningar sem saman mynda sambandsríkið Sviss./////við eigum að læra meira af þessu !!!en flestu öðru Svissarana vita, að þetta er best að lofa þjóðinni að skoða og ráða ef það er nokkurt vit í hlutunum er það ekki þjóðin sem þetta snýst um,að hún sé ráðast i flestum stórum og afdrifaríkum málum,náttúrlega með einhverjum hömlum en við sem erum að tala allt um lyðræðið eigum að' gera meir af þessu ,en ekki þetta Ráðherraræðis sem er nú,eða nánast einræði ríkistjórnar hver sem hún er!!,svo maður tali nú í fúlustu alvöru eigum við i kosningum kjósa um marga hluti i einu en ekki treistu þessu misvitra fólki sem sem bíður sig fram i hvívettna als ekki Kjósa um umdeilda hluti,það er að segja sem vara allt fólkið i landinu og fl./Halli gamli


mbl.is Svisslendingar kjósa um byssueign
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 44
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 41
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband