Nýir eigendur Eyrarodda/ Vestfirðingar gefast ekki upp ,gott mál,svo bara auka byggðarkvótan,það er nóg af fiski i sjónum!!

Nýir eigendur Eyrarodda
Innlent | mbl.is | 13.2.2011 | 13:23

Úr fiskvinnslu Eyrarodda.Verið er að leggja lokahönd á kaup á öllum eignum þrotabús Eyrarodda ehf. á Flateyri. Nýir eigendur eru Lotna ehf, en í forsvari þar eru Sigurður Aðalsteinsson útgerðarmaður og Kristján Kristjánsson skipstjóri, sem mun starfa sem framkvæmdastjóri vinnslunnar.

Að sögn Kristjáns hefur Lotna keypt allar fasteignir Eyrarodda; fasteignir, vinnsluhús, vinnslutæki og 15 tonna plastbát, Stjána Ebba. 

Hann segir að starfsemi muni hefjast innan tveggja vikna.

42 misstu vinnuna þegar Eyraroddi varð gjaldþrota. Kristján segir að ekki verði svo margir ráðnir nú, a.m.k. ekki til að byrja með. „Ætli við ráðum ekki á bilinu 20 - 30 manns. En ég á eftir að setjast yfir þetta og fjöldi starfsmanna fer auðvitað eftir því hvað okkur tekst að fá af hráefni inn í húsið.“

Lotna hefur yfir að ráða um 200 tonna kvóta í ýsu og þorski, bæði eignar- og leigukvóta, sem kemur á móti 300 tonna byggðakvóta Flateyrar. Einnig á Lotna báta, sem munu koma vestur.

„Nú erum við að byrja á að skoða málin, átta okkur á þessu og ráða mannskap. Ég vona að Flateyringar séu sáttir við þetta, öll viðbrögð sem við höfum fengið hafa verið jákvæð og góð,“ sagði Kristján.

Hann vildi ekki gefa upp kaupverðið á eignum Eyrarodda./////þetta goðs viti að Vestfirðingar gefist ekki upp þó móti blási!! Þessi ríkisstjórn sem nú er vill koma öllum útgerðum á hausinn!!! og byrja uppá nýtt leigja bara kvótann á okur verði s,vo engin endurnýjun geti átt sér stað það er að segja á flotanum og fiskvinnslunni bara að skara af þessu ein og hægt er án þessa og skoða afleiðingarnar,að  manni skilst,allavega er að skoðum margra þarna i samfylkingu og V.G en ekki allra þar,þeir voru frægir her áður þegar þetta var Alþýðuflokkur að vera á móti bændum!! Landbúnaður var ekki þeirra eltu hann og ófrægðu nú er þetta búið að snúast á móti útgerðum og fiskveiðum sem hafa verið undirtöðuatvinna og mest skapandi gjaldeyris af öllu,nema Álverin gera svipað eða meira,en svo er þetta fólkið vill að við nytum þetta betur og þar erum við öll sammala en ekki hvernig!! það i skilur á millum landans,en það er búið að na´samkomulagi umbil beggja en því á að rifta,þetta er með eindæmum að svona aðferðir skuli notaðar i þessum erfðistu tímum ,við eigum bara að kjósa um nýja ríkisstjórn og Fiskin og stjarnlagaþing i einum pakka ekki síst ESB það i liggur hluturinn/Halli gamli


mbl.is Nýir eigendur Eyrarodda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband