Umræðu lokið um Icesave/ við bíðum eftirað fá að kjósa fókið i landinu,um Icesave að bara ,ef ekki Alþingiskostning strax!!!

Umræðu lokið um Icesave
Innlent | mbl.is | 16.2.2011 | 2:54

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Steingrímur J. Sigfússon á Alþingi. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, var síðasti ræðumaður næturinnar í umræðunum um Icesave-frumvarpið, sem lauk nú kl. 2:35 aðfararnótt miðvikudags.

Í ræðu sinni lagði Sigmundur áherslu á að það að auka skuldir þjóðarinnar væri ekki til þess fallið að bæta lánstraustið. Hann benti einnig á að hrakspár í tengslum við fyrri Icesave-samninga hefðu ekki gengið eftir, hér hefði efnahagurinn ekki versnað með því að fella þá samninga eins og spáð hefði verið, heldur þvert á móti batnað.

Sigmundur sagði að með því að samþykkja samningana væri verið að festa í sessi verulega hindrun gegn efnahagslegri uppbyggingu, en hann sagði samningana mundu hafa í för með sér að gjaldeyrishöftunum yrði við haldið.

Umræðurnar í kvöld og nótt einkenndust af harðri gagnrýni á frumvarpið, einkum frá framsóknarmönnum, en nánast enginn var til varnar af hálfu stuðningsmanna málsins. Farið var ýtarlega yfir efnisatriði málsins og þau gagnrýnd en einnig bar mjög á gagnrýni á málsmeðferðina hjá ríkisstjórninni, allt frá undirbúningi fyrstu Icesave-samninganna til næturfundarins nú, sem þeir þingmenn sem töluðu töldu mjög ámælisverðan.

Í umræðum um málsmeðferðina ræddi Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, meðal annars um þörf á því að Icesave-málið yrði rannsakað í heild sinni frá hruni, en rannsóknarnefnd Alþingis hefði rannsakað það fram að þeim tíma. Hann nefndi margt sem kallaði á slíka rannsókn og lýsti miklum efasemdum um að ráðherrar hefðu gætt hagsmuna Íslands og unnið að málinu með eðlilegum hætti. Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, tók undir með Sigurði Kára um rannsókn og lagði áherslu á að rannsóknin mætti ekki aðeins beinast að núverandi ríkisstjórn./////engin afsökun hjá mínum að mega ekki hafa sjálfstæðar skoðanir Bjarni Ben.og nokkrir aðrir settu þetta á svið að taka á kvörðun með Steingrími og Jóhönnu ,þarna liggur eitthvað á spýtunni ,þeir hafa ekki  við að segja þeim sindanna en svo knékrupu þeir bara fyrir þessu svínaríi er að sem við eigum skilið sem kusum þá,b nei það eigum við ekki ,als ekki/það er nóg að borga næstu árin,svik eru þetta við malstaðin og ekkert annað/Halli gamli


mbl.is Umræðu lokið um Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (11.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 44
  • Frá upphafi: 1045742

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 43
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband