Tugir erlendra sjúklinga á mánuði/Drífum þetta upp í að vera alvöru!!!!!

Tugir erlendra sjúklinga á mánuði
Innlent | mbl.is | 19.2.2011 | 16:49

Frummælendur á fundinum í Valhöll í dag. Tugir erlendra sjúklinga koma hingað til lands í hverjum mánuði í ýmiskonar aðgerðir. Gjaldeyristekjur af þessum hópi nema nokkur hundruð milljónum króna á ári.

Þetta kom fram hjá Guðlaugi Þór Þórðarsyni, alþingismanni, á fundi um innflutning sjúklinga, sem Sjálfstæðisflokkurinn stóð fyrir í dag.

Guðlaugur Þór sagði að um 60 sjúklingar kæmu hingað til lands í hverjum  mánuði í augnaðgerðir og um 10 sjúklingar á mánuði í lýtaaðgerðir. Þessir sjúklingar væru flestir frá Færeyjum, Grænlandi og Noregi. 

Guðlaugur Þór sagði, að meðaleyðsla hvers sjúklings, meðan á dvöl hans stendur hér á landi, sé  á bilinu 300-800 þúsund krónur. Þá fylgi hverjum sjúklingi oftast 1-2 aðstandendur sem eyði á bilinu 160-300 þúsund krónum hér á landi. Því væru gjaldeyristekjur miðað við 70 sjúklinga á mánuði á bilinu 252–670 milljónir á ári

Guðlaugur Þór sagði, að einnig kæmu hingað tugir Færeyinga árlega á Landspítala í æðaaðgerðir og krabbameinsaðgerðir í tengslum við samning, sem spítalinn gerði við færeysk stjórnvöld í fyrra. 

Vaxandi eftirspurn

Guðbjartur Hannesson, velferðarráðherra, sagði á fundinum að vaxandi eftirspurn væri í heiminum eftir ódýrri heilbrigðisþjónustu og upp á síðkastið hefðu menn ef til vill horft á Ísland vegna þess að gengi krónunnar væri hagstætt, hér væri gott heilbrigðiskerfi og hingað væri gott að koma. 

Hann sagði nauðsynlegt að ganga fordómalaust til umræðunnar um innflutning sjúklinga og vega og meta þau álitaefni sem þar eru uppi. Hafa verði margt í huga og nefndi Guðbjartur m.a. að gengi krónunnar geti breyst, og hugsanlega verði búið að eyða eftirspurn, sem nú er eftir þjónustu af þessu tagi, eftir 1-2 áratugi vegna þess að önnur lönd hafa bætt eigin þjónustu.

Guðbjartur sagðist ekki hafa séð ástæðu til að setja lög til að stöðva þessa þróun. Það sé hins vegar  ljóst, að ríkið muni ekki leggja þeim aðilum, sem hyggja á einkarekna heilbrigðisþjónustu fyrir útlendinga, til neitt nema að skapa þeim almennt umhverfi. Þessir aðilar verði að bera ábyrgðina sjálfir og gangi dæmið ekki upp eigi fyrirtækin að fara á hausinn án þess að ríkið beri af því kostnað. 

Guðbjartur lagði áherslu á að hér mætti ekki myndast tvöfalt heilbrigðiskerfi þar sem Íslendingar, sem hafa ráð á því, geti keypt sér forgang. Guðlaugur Þór sagði að enginn hér á landi vildi sjá slíkt kerfi, en hætta væri á að það myndaðist ef framboð á almennri heilbrigðisþjónustu væri ekki nægilegt. Stóra markmiðið væri að halda uppi þjónustu í heilbrigðiskerfi og vera áfram í fremstu röð meðal  þjóða á því sviði. Verði tækifærin ekki nýtt sé mikil hætta á að forskotið tapist og það mætti aldrei gerast.

Hundruð starfa

Gunnar Ármannsson, framkvæmdastjóri Prima Care, sem er að undirbúa byggingu byggingu einkasjúkrahúss og hótels í Mosfellsbæ, sagði áætlað að fjárfesting í þessu verkefni næmi jafnvirði 17 milljarða króna. Þar gætu orðið til 600-1000 ný störf auk 250-300 starfa sem verða til á byggingartímanum. Þá væri gert ráð fyrir að 6-10 þúsund gestum árlega en sjúkrahúsið mun sérhæfa sig í mjaðmaliða- og hnjáaðgerðum fyrir útlendinga.  

Gunnar og Guðlaugur Þór fögnuðu því báðir, að mun jákvæðari tónn heyrðist hjá velferðarráðherranum en þeim heilbrigðisráðherrum, sem verið hafa í embætti á undanförnum misserum. Gunnar sagði, að menn yrðu að hafa þrek og þor til að ræða um þessa hluti án þess að gefa sér niðurstöðuna fyrirfram.

Erla Gerður Sveinsdóttir, yfirlæknir á Heilsustofnun Náttúrulækningafélags Íslands í Hveragerði, sagði á fundinum að tækifærin varðandi innflutning sjúklinga væru mun fleiri en ógnirnar. Fram kom hjá henni, að stjórn stofnunarinnar hefur nú samþykkt að taka við tveimur sjúklingum frá endurhæfingu frá Norðurlöndunum.///þetta er ekki spurning að fara í þetta á fullu,þetta skapar störf og gjaldeyrir sem okkur vanatar og við getum þarna gert stóra hluti,auðvitað i einkageira en ekki alltaf þessi rikisshit,þetta verður að standa vel undir Sér og mun gera það!! en svona er þetta með vinstri menn þeir mega ekki einu sinni tala um einkaleiran þá fa´þeir flog!! þetta er ekki með neina ríkisábyrgð og þessa vegna ef Íslendingar nota  það er bar borgað það sem gert er af þeim tryggingum sem við höfum annað ekki,en þetta svar að menn kaupi sig framfyrir,það get þeir gert einnig erlendis ef vill ,Því ekki að gera það her ,það skapar vinnu einnig,en það er ekki svo að við eigum að gera þetta og það vel og við eigum þarna mikla möguleika í mikilli vinnu og peningum i gjaldeyrir,ekki spurning/Halli gamli


mbl.is Tugir erlendra sjúklinga á mánuði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir

Algjörlega sammála þér.

Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 19.2.2011 kl. 18:31

2 Smámynd: Guðmundur D. Haraldsson

þetta er ekki með neina ríkisábyrg

Engu að síður er ríkið búið að taka frá milljarð fyrir einkaspítala í Reykjanesbæ.

Guðmundur D. Haraldsson, 19.2.2011 kl. 19:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 34
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband