Landbúnaðarvörur hækka /það hækkar allt nema launin þau lækka dag frá degi!!!

Landbúnaðarvörur hækka
Innlent | mbl.is | 1.3.2011 | 13:09

 Miklar hækkanir hafa orðið frá því í haust á verði á grænmeti, ávöxtum, mjólkurvörum, ostum og kjötvörum í vörukörfu ASÍ, að því er fram kemur í nýrri mælingu verðlagseftirlitsins sem gerð var nú í febrúar.

Við samanburð á mælingu verðlagseftirlitsins frá því í nóvember 2010 og nú í febrúar, hækkaði vörukarfan í öllum verslunum nema 11/11 og Samkaupum-Úrvali, en mesta hækkunin er í Hagkaupum um 9,1% og Bónus um 5,1%. Kostur neitaði að taka þátt í mælingunni.

Í lágvöruverðverslununum hækkaði verð vörukörfunnar mest hjá Bónus um 5,1% sem skýrist að stærstum hluta vegna hækkunar á grænmeti og ávöxtum (16,4%), mjólkurvörum, ostum og eggjum (7%) og kjötvörum (5,8%). Í Krónunni hækkaði vörukarfan um 3,5% sem skýrist að stærstum hluta vegna hækkunar á grænmeti og ávöxtum (16%), mjólkurvörum, ostum og eggjum (6,5%) og kjötvörum (6,1%). Í Nettó hækkaði vörukarfan um 1,1%. 

Í stórmörkuðum og klukkubúðum hækkaði verð vörukörfunnar mest hjá Hagkaupum um 9,1%, sem skýrist að stærstum hluta vegna hækkunar á kjötvörum (29,8%), grænmeti og ávöxtum (14,6%) og mjólkurvörum, ostum og eggjum (4,6%).

Í Nóatúni hækkaði vörukarfan um 4,5% sem skýrist að stærstum hluta vegna hækkunar á grænmeti og ávöxtum (12,7%), kjötvörum (5,2%) og sykri, súkkulaði, sælgæti og fl. (11,2%).

Í 10-11 hækkaði vörukarfan um 4,4% sem skýrist að stærstum hluta vegna hækkunar á kjötvörum (5,2%), grænmeti og ávöxtum (14,1%) og mjólkurvörum, ostum og eggjum (8,8%).

Í Samkaupum-Strax hækkaði vörukarfan um 2,3%. Verð vörukörfunnar hefur lækkað hjá 11/11 um (-1,2%) vegna lækkunar á sætindum um (-6,7%) og snyrtivörum um (-7,4%).

Í Samkaupum-Úrvali lækkaði vörukarfan um (-0,6%) vegna lækkunar á sætindum um (-13,3%). //////hvílíkur frumskógur að læra þetta allt ,það er bara eitt orð allt hækkar og hækkar nema launin sem lækka að raunvirði dagalega hvert má rekja þetta eru margar ástæður ,það á meðal Olían og flutningur og svo rafm.+hiti allt skattar og svo framvegis,en að sjá að ein verslun þarna lækkaði er skrítið eins að Kostur skuli ekki vilja vera með i þessu ,en  það hjóta að vera ástæður,en hversu lengi getur þetta gengið veit maður ekki,en það eru þolmörk á  öllu er það ekki???/Halli gamli


mbl.is Landbúnaðarvörur hækka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 6
  • Sl. sólarhring: 15
  • Sl. viku: 54
  • Frá upphafi: 1045704

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband