Sjálfstæðisflokkur með mest fylgi/ með þessu er ríkisstjórnin fallin !!!!!

Sjálfstæðisflokkur með mest fylgi
Innlent | mbl.is | 1.3.2011 | 18:17

Frá Alþingi. Sjálfstæðisflokkurinn mælist með 36% fylgi samkvæmt Þjóðarpúlsi Gallup, bætir við sig tveimur prósentum frá síðustu könnun Gallups og 12 prósentum frá síðustu kosningum.

Fjallað var um könnunina í fréttum Útvarpsins. Samkvæmt henni fær Samfylkingin fær 23%, bætir við sig einni prósentu en tapar sjö prósentum frá kosningum. Vinstrihreyfingin-grænt framboð mælist með 18% fylgi, einni prósentu minna en í síðustu könnun en flokkurinn fékk 22% í síðustu kosningum.

Fylgi Framsóknarflokksins mælist nú 14% en var 15% í kosningunum.  Fylgi Hreyfingarinnar mælist 5%. Svipaður fjöldi segist ætla að kjósa aðra flokka.

Rúmlega 13% svarenda taka ekki afstöðu eða neita að gefa hana upp og rúmlega 16% segjast myndu skila auðu eða ekki kjósa ef kosið yrði til Alþingis í dag. Úrtakið var tæplega 7000 manns////svona er þetta í dag ,að mínu áliti væri meiri munur ef sjálfstæðismenn hefðu verið á móti því að borga Icesave,en það er önnur saga og bara mín skoðun!! en með þessu er þessi ríkisstjórn fallin og það gott,það er það sem fólkið vill eða meirihlutinn,en svo gott er það ekki hún lifir á´þessu horrímini sem eru 2-3 atkvæði eftir því hvernig snýst dæmið,en það kemur að því og það vel,bara að við verðum ekki þá kominn í skítinn alveg,það er númer eitt að fara af stað með framkvædir ekki bara hugaburð eins og nú er,en aftur að fylginu það mun breytast eftir að þrengja fer meira um okkur öll og við getum ekki lifað af loftinu einu saman,ekki spurning um það,svo lengi má brýna deigt járn  að það býti/Halli gamli


mbl.is Sjálfstæðisflokkur með mest fylgi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það sem kemur einna mest á óvart er að Landráðafylkingin og VG skuli ENN mælast með eitthvað fylgi.

Jóhann Elíasson, 1.3.2011 kl. 23:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (11.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 44
  • Frá upphafi: 1045742

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 43
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband