Eistar setja upp rafbílakerfi/ þetta er einnig i gangi á Íslandi var kynnt á inn stöðinnu um dagin !!!!

istar setja upp rafbílakerfi
Erlent | AFP | 3.3.2011 | 17:03

Mitsubishi iMiEV rafbíll líkt og þeir sem eistneskir...Eistnesk yfirvöld tilkynntu í dag að þau hyggist koma upp hleðslukerfi fyrir rafbíla um allt landið. Ríkisstjórnin samþykkti að selja 10 milljón ónýttar kolefniseiningar til japanska bílaframleiðandans Mitsubishi og verður ágóðinn nýttur til að koma rafbílakerfinu upp.

Kolefniseiningar eru viðmið sett af Evrópusambandinu til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda í iðnaði. Forsætisráðherra Eistlands, Andrus Ansip, segir að með því að selja 10 milljón kolefniseiningar skapist grundvöllur  til að koma á stofn víðfeðmu innra kerfi fyrir rafbíla um allt Eistland. Yfirvöld munu festa kaup á 500 Mitsubishi i-MiEV rafbílum sem notaðir verða af opinberum starfsmönnum. Yfirvöld hafa einnig sett metnaðarfulla áætlun um stuðning við einkafyrirtæki um að uppfæra bílaflota sinn yfir í rafbíla.

„Við vonumst til þess að fyrir árslok 2012 verði 1.000 rafbílar á götum Eistlands," segir Ansip. 250 rafhleðslustöðvar verða settar upp vítt og breitt um landið og þar verður hægt að hlaða rafhlöður bílanna upp í 80% hleðslu á innan við 30 mínútum. „Þetta er mikið frumkvöðlastarf. Framtíðin mun leiða í ljós hvort og hvenær rafbílar verða í almennri notkun en þetta mun hjálpa okkur að fjölga þeim verulega í Eistlandi og spara mikla orku," hefur Afp eftir iðnaðarráðherranum Juhan Parts. /////þetta mjög gott framtak hjá Eistum  !!!og við erum að gera það sama,eða svo sá ég á inn stöðinni um daginn og er það einkafyrirtæki íslenskt en man ekki nafnið, en það mun raffvæða her um allt land og selja rafbila í næstu árum/Halli gamli


mbl.is Eistar setja upp rafbílakerfi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 45
  • Frá upphafi: 1045676

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 42
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband