Veggjaldið verður hóflegt/það, er í lagi að hafa þetta einkaframkvæmd en ekki með ríkisábyrgð !!!

Veggjaldið verður hóflegt
Innlent | mbl.is | 9.3.2011 | 14:13

Stofnfundur hlutafélagsins Vaðlaheiðarganga hf var á Hótel...Kristján Möller, fyrrverandi samgönguráðherra og stjórnarmaður í félaginu Vaðlaheiðargöng hf, segir að gjald um Vaðlaheiðargjald verði hóflegt. Það ráðist af tilboðum sem koma, fjármagnskostnaði og umferð um göngin.

Félagið Vaðlaheiðargöng hf. var stofnað á Akureyri í morgun. Kristján sagði að forvalsgögn væru tilbúin og forvalið, sem fer fram á EES, yrði auglýst í þessum mánuði. Í forvali er verkefninu lýst og þeir sem sýna áhuga á að taka þátt í verkefninu eru metnir m.a. með tillit til fjárhagslegrar getu og verkhæfni. Síðan er ákveðið hverjir fá að taka þátt í útboðinu. Kristján sagði að forval og útboð og yfirferð yfir tilboðin tæki allt að sex mánuði. „Ef þetta gengur allt eftir þá gætum við verið að byrja á framkvæmdum í haust,“ sagði Kristján.

Upphaflega var fyrirhugað að lífeyrissjóðirnir lánuðu beint til félagsins sem gerði og ræki göngin. Upp úr þeim viðræðum slitnaði í desember þar sem ekki náðist samkomulag um vexti. Í framhaldinu setti Alþingi inn ákvæði í fjárlög sem heimiluðu að ríkissjóður tæki að láni fjármuni og endurláni það til félagsins.

Kristján sagði að ekki lægi fyrir hvaða vextir yrðu af þessu láni, en vextir hefðu verið að lækka síðustu misserin og væru nú lægri en þeir voru þegar slitnaði upp úr viðræðum við lífeyrissjóðina í desember.

Kristján sagði að við undirbúning málsins hefði verið sett upp nokkur  reiknilíkön. „Þrír veigamestu þættirnir í því hvert veggjaldið verður eru framkvæmdakostnaður, fjármagnskostnaðurinn og umferðarmagnið. Heiildarkostnaður við framkvæmdir er áætlaður 10,4 milljarðar og við eigum eftir að sjá hvernig tilboðin verða, en við höfum verið að fá tilboð upp á 70-80% af framkvæmdakostnaði. Ef við fáum tilboð upp á 85% af kostnaðaráætlun þá lækkar framkvæmdakostnaður um 1,5 milljarð. Ég tel því allar forsendur til að veggjaldið verði hóflegt.“

Kristján sagði að hver vegfarandi um göngin sparaði sér 16 kílómetra.  Hann vildi ekki tjá sig um hvert veggjaldið yrði nákvæmlega en sagði aðspurður að það yrði undir 1000 krónum miðað við reiknilíkönin./////svona göng þ.ar sem hægt er að fara annan veg eiga og mega vara i einkaframkvæmd og það vel,en þarna þarf ekki að vera nein  ríkisábyrgð sé það ekki ef þetta er borgað af þeim,sem þarna keyra i gegn,svo metti viðar vera að menn gerðu svo , einmitt veggöld á nýjar leiðir sem bjóða uppá aðra leið þú hún sé verri!!!eins og til dæmis s SUNDABRAUT sem er langt kominn i mati og leiðum á að fara i strax sem einkabraut og selja i gegn gegn vægui gjaldi hun mundi margafalt borga sig ekki spurning!!!/Halli gamli


mbl.is Veggjaldið verður hóflegt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eiður Ragnarsson

Sammála þér Halli.. Skil ekki hversvegna menn eru ekki löngu byrjaðir á Sundabrautinni... Með veggjaldi..

Eiður Ragnarsson, 9.3.2011 kl. 15:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 6
  • Sl. sólarhring: 15
  • Sl. viku: 54
  • Frá upphafi: 1045704

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband