Nýr búnaður eykur öryggi/gott mál, og það að auka öryggið er fyrir öllu,en sjálfar vélarnar eru þær ekki að eldast mjög???

Nýr búnaður eykur öryggi
Innlent | mbl.is | 14.3.2011 | 14:44

Flugstjórarnir Baldvin Birgisson og Þórhallur Haukur...Endurnýjun stjórnklefa Boeing 757 flugflota Icelandair er hafin og var fyrstu vélinni flogið í áætlunarflugi eftir breytingu í síðasta mánuði. Fram kemur í tilkynningu frá Icelandair að það sé fyrsta flugfélagið í Evrópu sem geri þessa breytingu á Boeing 757 vélum sínum.

Nýi tækjabúnaðurinn auki öryggi flugsins, minnki viðhaldskostnað og sé auk þess léttari en eldri gerðin þannig að eldsneyti sparast.

„Boeing 757 flugvélarnar hafa reynst Icelandair afskaplega vel og henta leiðakerfi okkar frábærlega. Við erum í fararbroddi í þróun þessarar tegundar; við settum vænglinga (winglets) á vélar okkar fyrir nokkrum árum til að spara eldsneyti, við endurnýjuðum flotann með nýjum sætum og skemmtikerfi fyrir alla farþega, og nú er verið að framþróa stjórnklefana og bæta vinnuaðstöðu flugmanna," segir Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair, í tilkynningunni.

Fram kemur að í eldri gerð stjórnklefa séu tveir svokallaðir túpuskjáir hjá hvorum flugmanni auk margskonar mæla sem flugvélinni sé stýrt eftir. Í stað þessa búnaðar komi nú nýir stærri skjáir þar sem allar upplýsingar birtist, þar á meðal gervisjóndeildarhringur, sýn á fyrirhugaða flugleið, hraðamælir, hæðarmælir, fjölstefnuvitar, klukka og það sem flugmenn þurfi að nota í fluginu.

Tvær tölvur séu í stjórnklefanum (Flight Management Computers)  sem flugmenn setji inn fyrirhugaða flugleið og nýi búnaðurinn sæki mun meiri upplýsingar úr tölvunum en áður hafi verið unnt og þessar upplýsingar birtist á þessum nýjum skjám og bæti yfirsýn flugmannsins um framgang flugsins og stöðu vélarinnar.

Jafnframt þessari endurnýjun á stjórnborði flugvélanna sé verið að ljúka við að setja svokallaðan „Data Link“ búnað í flotann, en hann geri stjórnstöð Icelandair á Keflavíkurflugvelli kleift að vera í stöðugu sambandi við flugvélarnar á flugi og á jörðu niðri hvar sem þær séu staddar í heiminum jafnframt því sem stjórnstöðin sjái á skjám hjá sér staðsetningu flugvélanna á hverjum tíma í lofti og á jörðu niðri. Þá sé verið að ljúka við að setja myndavélar fyrir framan flugstjórnarklefa þannig að flugmenn geti séð á skjá hverjir hyggjast koma inn í flugstjórnarklefann.////þetta er mjög svo gott og flugfélagið á heiður skilið enda alltaf fengi viðurkenningar og það gott,öryggið er fyrir öllu svo og auðvitað þægindin um borð,þar er í lengri flugum sem eru um og yfir 7-8 tímar of þröng fyrir stærra fólk í almennum sætum, skil ekki i að þeir skuli ekki vera með breiðþotur á lengri leiðunum ,það er svo mikið rýmra þar/en það er kannski ekki í farvatninu spurning/Halli gamli


mbl.is Nýr búnaður eykur öryggi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 40
  • Frá upphafi: 1045659

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband