Algjört uppnám innan VG/er það nokkuð mynna hjá samfylgingu,nú fjarar undan ríkisstjórn ekki spurnig,Stór mál framundna leysast ekki með þessum meirihluta,kostningar það eina sem gyldir!!!

Algjört uppnám innan VG
Innlent | Morgunblaðið | 22.3.2011 | 9:30

Bergur Sigurðsson, framkvæmdastjóri þingflokks... Enn á ný er Vinstrihreyfingin – grænt framboð, annar tveggja stjórnarflokkanna, komin í kastljós fjölmiðlanna eftir tiltölulega rólega tíð í tæplega tvo mánuði. Það var vitanlega úrsögn þeirra Atla Gíslasonar og Lilju Mósesdóttur úr þingflokki VG sem dró að flokknum alla athygli fjölmiðla strax í gærmorgun.

Kunnugir segja þó að þótt óánægju og átökum hafi undanfarna mánuði verið haldið fjarri hinni opinberu umræðu hafi lengi verið ljóst að hverju dró, sérstaklega hvað varðar Lilju Mósesdóttur, en úrsögn Atla hafi hins vegar komið mjög við kaunin á flokksforystu VG, ekki síst Steingrími J. Sigfússyni, formanni flokksins og fjármálaráðherra.

Aðrir segja að hjáseta þeirra tveggja við afgreiðslu fjárlaga hafi strax gefið tóninn um að þau myndu ekki sætta sig við það til langframa að starfa í þingflokki VG án þess að í nokkru væri hlustað á eða tekið tillit til sjónarmiða þeirra.

Pólitískir munaðarleysingjar

Viðmælendur bentu á í gær að Lilja hefði verið hálfgerður pólitískur munaðarleysingi frá því sumarið 2009 og á vissan hátt mætti hið sama segja um Atla.

Eins og fram kemur í sameiginlegri yfirlýsingu þeirra Atla og Lilju frá því í gærmorgun tilgreina þau ýmsar ástæður fyrir úrsögn sinni og þeirri ákvörðun að styðja ekki lengur skilyrðislaust núverandi ríkisstjórn eða bera ábyrgð á stefnu hennar og vinnubrögðum. Þau tilgreina efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar, afgreiðslu fjárlagafrumvarpsins, samstarfið við AGS, stefnuna í Icesave og Evrópusambandsmálum, aðgerðarleysi vegna Magma, aðgerðarleysi vegna skuldavanda heimilanna og það sem þau nefna foringjaræði.

Orðrétt segja þau m.a.: „Við ætlum ekki lengur að vinna í umhverfi sem tortryggir störf okkar og reynir að beisla málfrelsi okkar. Það á bæði við um forystu okkar eigin flokks og samstarfsflokksins í ríkisstjórn. Við höfum ítrekað mátt sæta ómálefnalegum ásökunum í okkar garð frá formanni Samfylkingarinnar og einstökum þingmönnum þess flokks.“ Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins vissu aðeins þeir Ásmundur Einar Daðason, Ögmundur Jónasson og Jón Bjarnason um ákvörðun Atla og Lilju áður en þingflokksfundur VG hófst kl. 10 í gærmorgun, en þeir fengu að vita um þessa ákvörðun þingmannanna seint í fyrrakvöld. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins hefur þessi ákvörðun þeirra Atla og Lilju átt sér alllangan aðdraganda. Þau sögðu sig úr þingflokknum í upphafi þingflokksfundar í gærmorgun og viku síðan af fundi.

Veikari ríkisstjórn

Það er misjafnt hvaða áhrif þingmenn telja að þetta komi til með að hafa á störf ríkisstjórnarinnar. Vitanlega eru stjórnarandstöðuþingmenn þeirrar skoðunar að ríkisstjórnin hafi veikst mikið við úrsögn þeirra Atla og Lilju og stjórnarþingmenn ýmsir munu sömu skoðunar, þótt þeir vilji ekki segja svo opinberlega.

Ákveðnir stjórnarandstöðuþingmenn bentu í gær á að við úrsögnina styrktist staða Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra og Jóns Bjarnasonar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og stefna ríkisstjórnarinnar í ESB-málum veiktist að sama skapi. Nú væri þingmeirihlutinn svo naumur að formönnum stjórnarflokkanna, þeim Steingrími J. og Jóhönnu, yrði ekki lengur fært að kúga þessa ráðherra til hlýðni í hvaða máli sem er. Ástæða þess að Ásmundur Einar Daðason ákvað að sitja áfram í þingflokki VG er ekki talin vera sú að hann sé á nokkurn hátt ánægðari með störf og stefnu ríkisstjórnarinnar en þau Atli og Lilja. Hann hafi átt og eigi samleið með þeim í flestum málum.

Á það er bent að hann sé þingmaður sama kjördæmis og sjávarútvegsráðherrann, Norðvesturkjördæmis. Hann vilji styðja Jón með því að sitja áfram í þingflokknum, a.m.k. um hríð, en hann hljóti að gera kröfu um ákveðnar breytingar, ekki síst í Evrópusambandsmálum.

Því telja bæði stjórnarandstöðuþingmenn og ákveðnir stjórnarþingmenn að Jóhanna Sigurðardóttir og Össur Skarphéðinsson verði, um stundarsakir að minnsta kosti, að gleyma áformum sínum um að þröngva Jóni Bjarnasyni út úr ríkisstjórn, en þau hafa látið einarða andstöðu hans við ESB-aðild fara endalaust í taugarnar á sér, eins og alþjóð veit.

Því hefur jafnvel verið fleygt að Samfylkingin vilji leita eftir stuðningi annarra á þingi til þess að styrkja þingmeirihluta stjórnarinnar. Þannig er því haldið fram að þeir þingmenn Sjálfstæðisflokksins sem hafa verið hvað hallastir undir ESB-aðild Íslands, þær Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Ragnheiður Ríkharðsdóttir, hafi fengið hýrt auga frá ákveðnum þingmönnum Samfylkingarinnar, en viðmælendur Morgunblaðsins í gær töldu þó afar ólíklegt að þær færu að kljúfa Sjálfstæðisflokkinn til þess að styrkja ríkisstjórn Samfylkingar og VG, nema þá að þær vildu reyna að framlengja pólitískt líf sitt um einhverja mánuði eða misseri.

Raunar hefur slíkt hið sama verið fullyrt um hýrt augnaráð þingmanna Samfylkingarinnar til framsóknarþingmannanna Guðmundar Steingrímssonar og Sivjar Friðleifsdóttur, sem löngum hafa verið veik fyrir aðild Íslands að Evrópusambandinu.//////það er um margt fjalla núna og magar kenningar i gyldi um þessa úrsögn sem kannski heftur lengi verið i bígerð og hefði maður haldið að yrðu fleiri sem þarna segðu stopp og hingað og ekki lengra!! allavega Ásmundur Einar og Guðfríður Lilja og jafnvel Jón Bjarnasyni og fleiri,nú er orðið erfiðaðar fyrir Jóhönnu og Steingrím að segja þess fólki innan V.G. fyrir verkum eftir þetta!!!! ekki spurning það þýðir ekki að fela það!!Össur verður að hætta þessu látum ekki spurning og það er bókstaflega allt að komast i uppnám ,nema fiskveiðistefnuna þar eru þau sammála að eyðileggja hana,einnig að halda stólunum svo lengi sem sætt er,En Jóhanna og Steingrímur segja þetta engu breyta stjórnin haldi,reyndar sagði Jóhanna í gær ,að má skoða að fá aðra til samstarfs,eins og lesningin hér á undan í fréttinni er það langs sótt og eins og er ekki i myndinni,nema breyting verði á stjórnarfari!!! Þér eitt eftir og það kosningar og þær eiga að verða fyrr ekki neitt martækt ú hvað þjóðin vill,enda engin vanræði að gera það,fresta Icesave og kjósa um það og leið til Alþingi og fleira!!!/Halli gamli


mbl.is Algjört uppnám innan VG
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 14
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 1045793

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband