Fagnar árangri í aðildarviðræðum/svei því attan,að svifta okkur frelsinu!!!

Fagnar árangri í aðildarviðræðum
Innlent | mbl.is | 22.3.2011 | 21:53

Evrópuþingið í Brussel. Utanríkismálanefnd Evrópuþingsins segist í skýrslu um Ísland fagna árangri í aðildarviðræðum landsins og Evrópusambandsins þótt enn sé talsvert verk óunnið í ýmsum málum.

Eru sérstaklega nefnd Icesave-deilan, hvalveiðar og vilji Íslendinga til að vernda sjávarútveg og landbúnað.

Um er að ræða fyrstu skýrslu nefndarinnar um Ísland frá því aðildarviðræðurnar hófust á síðasta ári. Nefndin segist fagna því eitt af elstu lýðræðisríkjum álfunnar, sem hafi virkt markaðshagkerfi, kunni að ganga í Evrópusambandið. Hins vegar séu nokkur viðkvæm mál óleyst. 

Fram kemur í fréttatilkynningu frá Evrópuþinginu að Rúmeninn Cristian Dan Preda hafi skrifað skýrsluna sem var samþykkt með 48 atkvæðum gegn 2 en einn greiddi ekki atkvæði.

Fram kemur, að nefndin hvetur Ísland og Evrópusambandið til ná niðurstöðu í viðræðum um makrílkvóta. Þá leggi þingmenn áherslu á að Ísland þurfi að laga fiskveiðistjórnunarlög sín að reglum Evrópusambandsins um innri markaðinn. Ísland hafi þegar lýst þeirri almennu afstöðu, að það vilji hafa yfirráð yfir fiskveiðistjórnun og efnahagslögsögu sinni.

Þá segir nefndin, að alvarlegur ágreiningur sé enn um hvalveiðar og leggur áherslu á að hvalveiðibann sé hluti af regluverki Evrópusambandsins.

Þingmenn lýstu ánægju með að náðst hefði nýr Icesave-samningur milli Íslands, Bretlands og Hollands. Sögðust þeir vona að jákvæð niðurstaða yrði í fyrirhugaðri þjóðaratkvæðagreiðslu um samninginn.   

Haft er eftir Preda, að svo virðist sem stuðningur hafi aukist á Íslandi við að aðildarviðræðum verði haldið áfram og að meirihluti Íslendinga treysti Evrópuþinginu. Hins vegar telji utanríkismálanefndin, að auka þurfi fræðslu á Íslandi um hvað aðild að Evrópusambandinu feli í sér. Hvetja þingmennirnir íslensk stjórnvöld til að víkka út almennu umræðuna svo almenningur geti tekið upplýsta ákvörðun í væntanlegri þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarsamning.//////Þarna sjáum við svart á hvítu að þeir fagna því að fá okkur í mafíuna!!! svei attan því öllu saman ,að svipta okkur frelsinu með boðum og bönnum og nota auðlindir okkar þeim i hag semsagt  nánast landsala og frelsisrifting,það að að við viðurkennum fiskveiðar innri stjórnun með ESB og hvalveiðar bannaðar,allt sem við eigum að viðurkenna er þarna,!!! Landbunaður eyðilegðum algjörlega og svo framvegis,þetta et glæpur og ekkert annað sem þessir andskotar vilja koma okkur i og þar stendur samfylking heil um ,þetta munum  við muna/Halli gamli


mbl.is Fagnar árangri í aðildarviðræðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

ESB verður okkur til hagsbóta. Það er enginn að fara að ræna af okkur auðlindum og landbúnaðurinn mun blómstra innan ESB.

Sleggjan og Hvellurinn, 23.3.2011 kl. 00:27

2 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Þruma þú ert eins og gamla sagan af nýja hamrinum sem var búið að skipta tíu sinnum um skaft og þrisvar um haus

Sigurður Haraldsson, 23.3.2011 kl. 00:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 1045662

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband