Stjórnlagaráð samþykkt/25 hómópatar eiga að gera stjórnaskrána,sem er Alþingis að gera,bruðlið heldur áfarm!!!

Stjórnlagaráð samþykkt
Innlent | mbl.is | 24.3.2011 | 12:22

Gert er ráð fyrir því að leitað verði til þeirra 25...Alþingi samþykkti í dag, með 30 atkvæði gegn 21, tillögu um að skipa 25 manna stjórnlagaráð til að fjalla um breytingar á stjórnarskránni. Sjö sátu hjá í atkvæðagreiðslunni, þar á meðal tveir ráðherrar Jon Bjarnson og Ögmundur Jónasson

.atkvæðagreiðslan var löng og margir þingmenn tjáðu sig um hana og voru skoðanir afar skiptar. Stuðningsmenn tillögunnar sögðu, að með henni væri hvorki verið að sniðganga lög, ákvörðun Hæstaréttar um að ógilda stjórnlagaþingskosninguna né brjóta gegn stjórnarskrá.

Þeir sem greiddu atkvæði gegn tillögunni sögðu hins vegar að verið væri að ganga á svig við niðurstöðu Hæstaréttar. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfsstæðisflokksins, lagði jafnframt áherslu á, að flokkurinn hefði fullan vilja til að vinna að breytingum á stjórnarskránni.

En Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði að Sjálfstæðisflokkurinn vildi ekki endurskoða stjórnarskrána nema hann fengi að sjá algerlega um þá endurskoðun sjálfur.

Þingmenn Sjálfstæðisflokksins  greiddu allir atkvæði gegn  þingsályktunartillögunni og þingmenn Hreyfingarinnar greiddu allir atkvæði með henni. Aðrir flokkar klofnuðu. Fjórir þingmenn Samfylkingarinnar, Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, Helgi Hjörvar, Skúli Helgason og Kristján L. Möller sátu hjá en Kristján sagðist ekki geta sætt sig við að aðeins tveir fulltrúar af landsbyggðinni sitji í stjórnlagaráði.

Þrír þingmenn Framsóknarflokksins, Guðmundur Steingrímsson Höskuldur Þórhallsson og Siv Friðleifsdóttir, studdu tillöguna og einn, Eygló Harðardóttir, sat hjá en aðrir þingmenn flokksins greiddu atkvæði gegn tillögunni. Sagði Siv að Alþingi hefði fulla heimild til að skipa stjórnlagaráð og það væri fráleit túlkun að verið sé að brjóta stjórnarskrána.

Þá sáti Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, og Jón Bjarnason, landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, hjá í atkvæðagreiðslunni. Lilja Mósesdóttir, sem sagði sig úr þingflokki VG á mánudag, greiddi atkvæði gegn henni.///allt er gert til að gera þatta svo auðvirðulegt að það hálfa væri nóg  ,að láta þessi Hómópata gera þetta sem Alþingi á gera og er kosðið' til er ekki í lagi og er bara bruðl a peningum og ekkert annað ,þetta synir hvernig þessi vinstri men snúa öllu á hvolf/Halli gamli


mbl.is Stjórnlagaráð samþykkt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Aðeins fáir alþingismenn menn sátu það stjórnlagaþing, sem áður hefur verið haldið á Íslandi, en það var þjóðfundurinn 1851. Hinir voru þá væntanlega "hómópatar", en kosið var sérstaklega til þessa þings, þótt Alþingiskosningar hefðu farið fram áður. Hvílíkt "bruðl" hjá þjóð í torfkofum og vegalausu landi!

Ef skilgreiningin á hómópötum er sú að allir aðrir en löglærðir menn séu "hómópatar", þá var Jón Sigurðsson væntanlega "hómópati" svo og langflestir þeirra manna, sem setið hafa í stjórnarskrárnefndum síðan. 

Ómar Ragnarsson, 24.3.2011 kl. 14:20

2 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Þakka innlitið Ómar en ég sný ekki baka með þetta nema þér finnist þetta niðrandi,hómópati er maður sem vinnur starf sem hann er ekki lærður til,og það gerum við öll að einhverju leyti,en að setja samana stjórnaskrá Íslands er ekki vek þeirra,það er lærðra manna í lögum og stjórnsýslu,svo það nátturlega hafa allir skoðanir,en þetta er bruðl,kostar mikla peninga,og hver borgar,við auðvitað,Alþingi hefur nógan tíma til að gjöra þetta,og þess er að samþykka það hvort eð er*/Kveðja P/ég vil engan móðga þetta fólk sem var kosið er besta fólk/sami

Haraldur Haraldsson, 24.3.2011 kl. 18:25

3 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Hómópati er smáskammtalæknir. Hómópatía tilheyrir óhefðbundnum lækningum og líðst hér á landi m.a. þótt hún sé algerlega út í hött og í grunninn fjárplógsstarfsemi. Það má læra fagið í háskólum.

Veit ekki hvaðan þið vinirnir hafið þetta rakalausa bull um hómópata. Væri kannski rétt að þið opnuðuð bók og læsuð ykkur til.

Ég er orðlaus yfir bullinu...

Jón Steinar Ragnarsson, 24.3.2011 kl. 22:09

4 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Jón Steinar: bull og ekki bull,það er einmitt það sem ég meina,erum við það ekki flest,þurfum ekkert i Háskola til þessa!!! þú ættir að vera orðlaus yfir einhverju öðru/Kveðja

Haraldur Haraldsson, 24.3.2011 kl. 22:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 1045634

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband