Ætla að fjármagna OR til 2016/allt silgt í strand sem skilar arði framkvamdir stoppaðar!!!!

 að fjármagna OR til 2016
Innlent | mbl.is | 29.3.2011 | 15:43

Frá stjórnarfundi Orkuveitunnar fyrr í dag. Eigendur Orkuveitu Reykjavíkur ætla að fjármagna fyrirtækið til loka ársins 2016 án þess að lánastofnanir komi þar við sögu. Á fundi í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur var samþykkt aðgerðaráætlun fyrir fyrirtækið í fimm liðum.

Aðgerðaráætlunin miðar að því að skjóta tryggari stoðum undir rekstur og starfsemi fyrirtækisins til loka ársins 2016 við þær erfiðu aðstæður sem nú eru á lánamörkuðum. Fjárþörf OR er áætluð 50 milljarðar króna á árunum 2011-2016 og það bil verður brúað með því að fresta nýfjárfestingum og viðhaldsverkefnum í dreifikerfi, draga enn frekar úr rekstrarkostnaði, selja eignir, hækka fráveitugjald og gjald fyrir heitt vatn. Þá mun OR fá víkjandi lán hjá eigendum sínum þegar í stað og þannig verður komið í veg fyrir sjóðþurrð sem ella stefnir í hjá fyrirtækinu fyrir mitt ár 2011.
 
Aðgerðaáætlunin hefur hlotið samþykki í byggðaráðum Reykjavíkur, Akraness og Borgarbyggðar með fyrirvara um staðfestingu sveitarstjórnanna.
 
Stjórn og stjórnendur OR kynntu margvíslegar ráðstafanir í ágúst 2010 til að tryggja starfsemi fyrirtækisins. Þær leiddu til uppsagna starfsfólks og fólu í sér hækkun gjaldskrár, rekstrarhagræðingu og sölu eigna sem ekki tilheyra kjarnastarfseminni.
 
Fyrir lá þá þegar að þessar ráðstafanir myndu ekki skila sér að fullu fyrr en liði á árið 2011 og að OR yrði jafnframt að njóta áfram fyrirgreiðslu á erlendum lánsfjármarkaði. Nú hefur hins vegar komið á daginn að áætlanir um erlenda lánsfjármögnun ganga ekki eftir og fyrirtækinu er um megn að fjármagna sig af eigin rammleik.
 
Stjórn og stjórnendur Orkuveitunnar kynntu eigendum, sveitarfélögunum þremur, þessa alvarlegu stöðu snemma árs 2011 og óskuðu samstarfs við þá um fjármögnun fyrirtækisins. Aðgerðaáætlunin er afrakstur þess samstarfs og miðar að því að tryggja rekstur fyrirtækisins til frambúðar og að OR geti staðið við skuldbindingar sínar með sem minnstum áhrifum á þjónustu fyrirtækisins.
 

Ráðstafanir í fimm meginþáttum

Eigendur OR ætla að fjármagna fyrirtækið til loka ársins 2016 án þess að lánastofnanir komi þar við sögu. Það eru sem sagt viðbrögð sveitarfélaganna við ástandi sem við blasir eftir að staðreynt var að fyrirtækið fékk ekki nauðsynlega lánafyrirgreiðslu. Sameiginleg niðurstaða eigendanna er að taka af allan vafa um að Orkuveitan geti staðið undir skyldum sínum gagnvart fólki og fyrirtækjum á veitusvæði sínu.
 
Hins vegar þarf mun meira til að koma en lán eigendanna til að tryggja rekstur Orkuveitunnar til frambúðar. Ráðstafanir í þeim efnum voru boðaðar í ágúst 2010, eins og fyrr er getið um, en nú hafa þær verið útfærðar enn frekar í fjórum meginþáttum og tímasettar. Víkjandi lán frá eigendum OR er síðan fimmti meginþáttur aðgerðaáætlunarinnar sem nú er kynnt.
////það er þeirra mottó að fara undan hallanum,það eru aðferðir þær sömu og ríkisstjórnar að gera helst ekkert nema stoppa hæka selja og borga,engan aðsemisbreytingar engar framkvæmdir sem skilar arði og peningum,þetta er leið sem ríkisstjórnin fer að kom akkur i skitin og fa´tækt og aumingjaskap,áð tekur svo við ESB og hjálpa röllu!!! þetta sjá alir sem vilja þetta er men  sem ekki valda þessu helmingur af fólki sem ekkert veit um rekstur eða framkvæmdir!!!við munum motmlæla þessu öllu ekki spurning,það a´að hækka heitavatnið svo við aumingjarnir deyjum úrr kulda ein og gerist i hinum ESB löndunum,svo og það er peningar til hjá lífeyrisjóðum til að fá ´ekki spurning hvað munar þeim um að lána 50 mljjarað með sæmilegum vöxtum,farkvæmdir a´hitakverum sem knýja rafmagn munu bora það + vexti !!! þetta er ekki a´setjalandi þessi vitlausa stjórn þarna burt með hana/Halli gamli 
 


mbl.is Ætla að fjármagna OR til 2016
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Sæll Halli minn. Lífeyrissjóðirnir ættu að lána OR, það er að segja ef eitthvað er eftir í þeim eftir sukkið og svínaríið á liðnum árum. Nú kemur í ljós hvort eitthvað er eftir á þeim bænum?

 Ef þeir vilja ekki lána er aðeins ein skiljanleg skýring á því viljaleysi og hún er að allt sé löngu búið eða veðsett í topp og því ekki til taks. Eða hvað?

 M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 29.3.2011 kl. 16:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 11
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 42
  • Frá upphafi: 1045650

Annað

  • Innlit í dag: 10
  • Innlit sl. viku: 39
  • Gestir í dag: 10
  • IP-tölur í dag: 10

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband