Saksóknari á ekki að reka á eftir lagabreytingu/´"sér grefur gröf þótt grafi" segir máltækið ??

Saksóknari á ekki að reka á eftir lagabreytingu
Innlent | mbl.is | 30.3.2011 | 11:53

Landsdómur kemur saman í Þjóðmenningarhúsinu.Andri Árnason hrl., verjandi Geirs H. Haarde mótmælir því harðlega að Alþingi geri nú breytingar á lögum um landsdóm, eftir að ákæra var samþykkt á Alþingi.

Sigríður Friðjónsdóttir, saksóknari Alþingis, sagði í samtali við mbl.is í gær að hún undraðist að Alþingi væri ekki búið að afgreiða frumvarp um breytingar á lögum um landsdóm.

Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, mælti fyrir frumvarpinu í lok nóvember á síðasta ári. Frumvarpið mætti mikilli andstöðu sjálfstæðismanna. Fyrstu umræðu um málið er enn ekki lokið og málið er enn ekki komið til nefndar þrátt fyrir að fjórir mánuðir séu frá því mælt var fyrir því.

Andri sagðist hafa talið, að ákveðið hefði verið að svæfa þetta frumvarp og því kæmi mjög á óvart að saksóknari Alþingis væri að þrýst á þingið um að fá það samþykkt. Afstaða Alþingis sl. haust hafi verið sú að engar breytingar þyrfti að gera á landsdómslögunum til að reka mál gegn Geir H. Haarde og því komi breytingar nú ekki til greina.

Andri segir að sé grafalvarlegt mál hvernig þetta beri að. Landsdómur sjálfur, eða forseti hans, sem fer með dómsvaldið í málinu, leggi til breytingarnar, geri tillögu í samráði að því er virðist við ráðherra, sem var einn af þeim sem samþykktu málshöfðunarályktunina, og fái síðan Alþingi, sem ákærir, til að breyta lögunum.

„Venjulega þarf verjandi aðeins að glíma við ákæruvaldið. Þarna taka sig saman dómsvaldið, framkvæmdarvaldið og löggjafarvaldið og leggjast á sveifina með ákæruvaldinu, að laga málsmeðferðina og skipan dómsins til,“ segir Andri.

Andri bendir á að samráð hafi verið milli saksóknarans í máli þessu annars vegar og dómsmálaráðuneytisins hins vegar, en verjandi var aldrei spurður álits.  Þetta sé líklega einsdæmi í réttarsögunni. Andri bendir á að það viti allir að það er aðeins eitt mál til meðferðar hjá dómstólnum og því er lagabreytingunni ljóslega beint gegn ákærða og að nokkru leyti honum óhagfelldar.  

Þá sé einnig algjörlega óviðeigandi að saksóknari Alþingis í þessu máli gegn Geir, sé að reka á eftir lagabreytingum./////eitt hneiklsið rekur annað það er svo að eins og maltækið segir " sér grefur gröf þótt grafi" það er svo að ef Geir Haarde verður dæmdur er af nógu af taka ,er .að ekki krímilelt það sem Steingrímur og Jóhanna gerðu að ætla að borga Icesaave 1-2 með milljarða álagi!!! svo væri hlægt að tina til svo margt sem þau skötuhjú hafa gert sem orkar meir en tvímælis,ef þessi dómur kemst með klækjum að þessi eini maður er sekur  ,þá er auðveldur eftirleikurin  ekki spurning um það,þessi maffía sem stefnir a´að dæma þann menn sem reddaði okkur alveg i hruninu er skömm og ekkert anna/Halli gamli


mbl.is Saksóknari á ekki að reka á eftir lagabreytingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 6
  • Sl. sólarhring: 15
  • Sl. viku: 54
  • Frá upphafi: 1045704

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband