Tillaga um vantraust lögð fram/ekkert annað í stöðuni :styð þetta heilshugar!!!!

Tillaga um vantraust lögð fram
Innlent | mbl.is | 12.4.2011 | 14:23

Bjarni Benediktsson formaður flokksins í ræðustól á Alþingi. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði á Alþingi í dag að hann myndi leggja fram tillögu á Alþingi um vantraust á ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna. Hann sagði nauðsynlegt að boða til nýrra kosninga.

„Ríkisstjórnina skortir stuðning og ríkisstjórnina skortir traust fólksins í landinu. Hún forgangsraðar ekki í þágu Íslendinga. Hana skortir framtíðarsýn og hana skortir skilning á því að í mannauði þjóðarinnar felast verðmæti. Það eru verðmæti sem við þurfum að virkja. Það eru hagsmunir þjóðarinnar að það verði boðað til kosninga sem fyrst. Það mun tryggja traust milli þings og þjóðar við lausn þess máls sem hér er á dagskrá, en það mun ekki síður endurvekja traust á þessari mikilvægu og valdamestu stofnun landsins. Þess vegna verðum við að ganga til kosninga. Ég mun leggja fram vantrausttillögu á ríkisstjórnina í dag,“ sagði Bjarni.

Tillaga um vantraust kom síðast fram á Alþingi í nóvember 2008, þegar formenn stjórnarandstöðunnar báru fram tillögu um vantraust á ríkisstjórn Geirs H. Haarde. Tillagan var felld.///Maður sér ekki annað i stöðunni því miður!! þetta gengur ekki lengur að  atvinnuleysi og framkvæmdaleysis verði áfram og alskona mála rædd dag eftir dag til að vinna að gæluverkefnum ESB og ríkisstjórnar til meiri hafta og einræðis en ekki lýðræðis/þetta er nauðsyn ekki annað,ef bjarga á málum ,ekki spurning um það!!!/Halli gamli


mbl.is Tillaga um vantraust lögð fram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 1045684

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 47
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband