Snögg sinnaskipti/ já Steingrímur það er spurning hvort hann sló þér út,fljótur hefur þú verið að skipta um skoðun mikið oftar!!!

Snögg sinnaskipti
Innlent | mbl.is | 13.4.2011 | 22:15

Vantrauststillagan var felld með 32 atkvæðum gegn 30 en einn sat hjá. Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra og formaður Vinstri grænna, sagði í kvöldfréttum Sjónvarps að afstaða Ásmundar Einars Daðasonar, þingmanns flokksins, hefðu valdið vonbrigðum og komið verulega á óvart.

Steingrímur sagði, að það hefði ekki komið honum á óvart, að Atli og Lilja gerðu það sem þeim sýndist, það hefðu þau lengi gert. Hann hefði hins vegar orði  fyrir vonbrigðum með að Ásmundur Einar Daðason skyldi styðja tillöguna. Á þingflokksfundi í hádeginu í dag hefði Ásmundur Einar ekki látið neitt uppi um fyrirætlanir sínar en eftir kvöldmat lagði hann til að stjórnin yrði felld.

„Ég hef aldrei áður á mínum ferli upplifað jafn snögg sinnaskipti stjórnarþingmanns," sagði Steingrímur, en hann bætti við að þessi ríkisstjórn ætti mörg líf eftir.  

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, sagði við Sjónvarpið að atkvæði Ásmundar Einars hefði komið á óvart og staðan væri því ekki alveg óbreytt eftir daginn. 

Þá sagði Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokks, að í ljós hefði komið að það hafi verið tímabært og nauðsynlegt að framkalla þessa mælingu á stuðningi við ríkisstjórnina. Nú væri ljóst, að stjórnarmeirihlutinn hangi á einum manni.

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, sagði að þótt meirihlutinn væri vissulega naumur væri hann nægur og stjórnin hefði oft farið í gegn með stórmál þar sem meirihlutinn var knappur.////það er ekki furða að Steingrímur skuli þetta segja ,sem hefur skipt um skoðun bókastfega á flestu eftir að hann komst i  ríkisstjórn og oft eftir það,hvort það i tíma er met hjá Ásamundi  Einari er kannski  svo en Steingrímur á öll met i að skipta um skoðanir ekki spurning!!!En svona er komið fyrir þessari vinstri stjórn að hún hangir á einum manni,hversu lengi er spursmál mikið/Halli gamli


mbl.is Snögg sinnaskipti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 8
  • Sl. sólarhring: 13
  • Sl. viku: 39
  • Frá upphafi: 1045647

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband