ESB vill taka upp kvótakerfi/er þetta uppskrift frá Jóhönnu eða öfugt ,við könnumst eitthvað við þetta!!!

ESB vill taka upp kvótakerfi
Erlent | mbl.is | 12.5.2011 | 7:52

Þorskur á markaði í Skotlandi. Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins áformar að taka upp kvótakerfi í sjávarútvegi þannig að skip fái úthlutað veiðikvóta til að minnsta kosti 15 ára.

Að sögn breska ríkisútvarpsins BBC mun framkvæmdastjórn Evrópusambandsins leggja fram tillögu þessa efnis í júlí. Þar er gert ráð fyrir að breytingarnar taki gildi árið 2013.   

Sameiginleg sjávarútvegsstefna Evrópusambandsins hefur verið í gildi í 28 ár. Henni er ætlað að tryggja að veiði úr fiskistofnum sé innan sjálfbærra marka en gagnrýnendur halda því fram, að áhrifin séu þveröfug.

Eitt helsta markmið nýju tillagnanna er sagt vera að útrýma brottkasti með því að taka upp kvótakerfi þar sem úthlutun kvóta byggi á því hve mörgum fiskum sé landað en ekki á því hve margir séu veiddir. 

BBC segist hafa undir höndum uppkast að tillögunni og samkvæmt henni sé gert ráð fyrir því, að endanleg ákvörðun um veiðikvóta verði í höndum stjórnmálamanna en ekki vísindamanna.

Segir BBC að í tillögunum sé gert ráð fyrir að gefnir verði út framseljanlegir veiðikvótar fyrir öll fiskiskip lengri en 12 metrar og einnig fyrir minni togveiðiskip. Fyrst verði heildarkvóta úthlutað fyrir hvert land og útgerðir fái síðan hlutdeild í þeim kvóta til að minnsta kosti 15 ára í senn. Gert er ráð fyrir að útgerðir geti átt viðskipti sín á milli um kvóta bæði innan hvers lands og hugsanlega milli landa ef viðkomandi ríkisstjórnir samþykki það.  

BBC segir, að sumir umhverfisverndarsinnar lýsi þessum tillögum sem „einkavæðingu úthafanna".////eitthvað kannast maður við orðalegið,er þetta uppskrift frá Jóhönnu og c/o eð öfugt tók hún þarna bara fyrirfram þetta ákvæði frá ESB !!!hún og Össur eru þarna inni ein og sagt er komin með annan  fótin  ,mikið er þetta lýkt  því sem við erum að sjá þarna hjá oss ,það er svo að ef þetta gengur eftir eru allir samningar komnir i þrot,en við látum ekki far svona með okkur aldeilis ekki/Halli gamli


mbl.is ESB vill taka upp kvótakerfi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Sept. 2024
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.9.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 1046430

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband