Langur fundur með Hillary/skal Össur hafa mynst á skandalan með Orðuna, sem sendiherran átti að fá en var snúið við???

Langur fundur með Hillary
Innlent | mbl | 18.5.2011 | 21:08

Össur Skarphéðinsson og Hillary Clinton í bandaríska...Össur Skarphéðinsson átti í dag fund í Washington með Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Össur sagði að fundi loknum að hann hefði verið langur og árangursríkur, mun lengri en áætlað hefði verið.

Hillary Clinton gaf stutta yfirlýsingu, er fjölmiðlum gafst færi á að myndatöku í bandaríska utanríkisráðuneytinu. Fagnaði hún sérstaklega fyrsta flugi Icelandair til Washington og sú áætlunarleið ætti eftir að nýtast þeim sem áhuga hefðu á ferðum til Íslands.

Hillary sagði Ísland og Bandaríkin hafa mörg mál til að ræða um, og þau Össur hefðu einnig átt fund í Nuuk á Grænlandi í síðustu viku. Þakkaði Össur fyrir hlýjar móttökur í ráðuneytinu og minntist ánægjulegra funda þeirra á Grænlandi.

„Við ræddum mjög lengi málefni er varðar samskipti norðurslóðarmála. Ég óskaði eftir því að Bandaríkin myndu styðja viðleitni Íslendinga til að koma sem fyrst í gegn lagalega bindandi samningum um varnir gegn olíumengun. Hún lýsti fullum stuðningi við það. Einnig nefndi ég að það væri eindregin stefna og viðleitni íslenskra stjórnvalda að efna til alþjóðlegrar miðstöðvar á sviði leitar og björgunar á Íslandi. Hún tók ákaflega vel í þá hugmynd og ég lít svo á að þetta sé upphafið að viðræðum millum okkar og Bandaríkjanna um hvernig hægt sé að ná því fram, auðvitað í samvinnu aðrar þjóðir," sagði Össur.

Hann upplýsti einnig að Hillary hefði tekið vel í þá tillögu að á þessu ári myndu embættismenn Íslands og Bandaríkjanna hefja vinnu við að leggja drög að formlegu samkomulagi um samstarf þjóðanna í framtíðinni á sviði rannsókna er tengjast norðurslóðum.

Þá voru samskipti þjóðanna rædd á sviði varnar- og öryggismála, og þær skuldbindingar sem Bandaríkin hefðu gagnvart Íslandi á því sviði. Með samningnum árið 2006, þegar bandaríski herinn fór, var efnt til ákveðins ráðslags á milli ríkjanna. „Það var sammæli okkar að ýta undir það, málin hafa ekki verið síðustu árin í takt við það sem til var efnt. Þar þarf að skoða ákveðna þætti betur," sagði Össur.

Fjölmörg önnur mál voru rædd á fundi utanríkisráðherra, m.a. málefni Líbíu og Sýrlands, staðan í Palestínu, samstarf Íslands og Bandaríkjanna í orkumálum og þá spurði Hillary út í stöðu efnahagsmála á Íslandi og hvernig samstarfið við Alþjóða gjaldeyrissjóðinn gengi.

Að sögn Össurar ræddu þau einnig um áætlunarflug Icelandair til Washington. Af því tilefni hefði Hillary rifjað upp Íslandsferð þeirra Bills Clinton á fyrstu árum sambands þeirra. Þrjátíu og fimm árum síðar hefði Bill enn munað eftir slagorði Icelandair á þeim tíma: ,,We are the slowest but the lowest".

Kveðja til Húsavíkur

Þá sagðist Össur hafa greint Hillary frá opnun ljósmyndasýningar á Húsavík í lok vikunnar, til minningar um það þegar Neil Armstrong geimfari kom þangað að æfa sig fyrir tungferð ásamt fleiri bandarískum geimförum. Bað Hillary fyrir kveðju til þeirra sem standa að sýningunni, sem eru Örlygur Hnefill Jónsson og sonur hans, Gunnar.///ja´það er löngu komin tími til að endurnýja þetta goða samband okkur við Bandaríkin og hefur verið vik milli vina fra´sneyptum fundi sem átti að vera þegar sæma átti ágætan sendiherra þeirra orðu en var snúið við A´siðustu stundu af kommunum i ríkisstórn vorri eða bara kannski Össuri ??? skoða bara,en þetta er gott mjög að koma þarna og endurnýja þetta goða samband sem er og ætti að vera mikið meira á mörgum sviðum/Halli gamli


mbl.is Langur fundur með Clinton
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vilhjálmur Stefánsson

það vefst ekki fyrir Össuri að ljúga,fundurinn stóð í hálftíma. 

Vilhjálmur Stefánsson, 18.5.2011 kl. 22:10

2 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Halli. Okkur er víst öllum hollast og farsælast að horfa framhjá mistökum og breksleikum mannskepnunnar, eins og hægt er, og einblína á framtíðar lausnir í friðsemd.

Það er víst komið nóg af stríði í veröldinni, sem hefur einungis skilað hörmungum til manna og dýra, og jarðarinnar okkar allra, jarðarinnar sem er einnota móðir alls lífs og tilveru-möguleika allra ólíkra!

 M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 18.5.2011 kl. 23:51

3 Smámynd: Óskar

Þetta er nú meira bullið í þér.  Það var Ólafur Ragnar Grímsson sem hafði ákveðið að veita umræddar orðu en hætti svo við það.  Vertu ekki að reyna að kenna öðrum um það klúður. 

Óskar, 18.5.2011 kl. 23:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 34
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband