Komast hjá virðisaukaskatti/Er hægt að leggjast neðar í skattsvikum eigin skatta !!!!

Komast hjá virðisaukaskatti
Innlent | mbl.is | 30.5.2011 | 13:12

Flokksstjórnarfundur Samfylkingarinnar var haldinn í... Samtök ferðaþjónustunnar segja, að það hafi vakið athygli þeirra fyrirtækja, sem leigja út ráðstefnusali, að stjórnmálaflokkar hafa að undanförnu haldið flokksþing sín í skólastofnunum og þurfi því ekki að greiða virðisaukaskatt af húsaleigunni.

Segja samtökin, að Vinstri grænir hafi á síðasta ári haldið tvo fundi í Hagaskóla. Samtök ferðaþjónustunnar hafi sent bréf til Hagaskóla og spurt um lögboðið starfsleyfi og greiðslu virðisaukaskatts. Þessu erindi hafi verið vísað til borgarlögmanns, sem hafi ekki enn svarað því.


Þá hafi Samfylkingin haldið flokksstjórnarfund um síðustu helgi í Fjölbrautaskóla Garðabæjar.  Þar sé starfsleyfi til staðar en sökum fárra funda á ári falli skólinn undir undanþágu frá virðisaukaskatti.

Þá fari fram umfangsmikill ráðstefnurekstur í Háskóla Íslands og ekki allur á vegum HÍ.  Þar sé virðisaukaskattur ekki innheimtur.

„Til þess að leigja út ráðstefnusal þarf starfsleyfi skv. lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald auk þess sem greiða þarf 25.5% virðisaukaskatt af leigunni, sem er hæsti virðisaukaskattur í heimi. Það ríkir gríðarleg samkeppni á þessum markaði og fyrir löghlýðin fyrirtæki er erfitt að eiga í samkeppni við opinberar stofnanir sem þurfa ekki að standa skil á svo háum skatti.   að er ömurleg staða að stjórnmálaflokkarnir skuli vera búnir að skattleggja fyrirtækin svo harkalega að þeir verði sjálfir að forðast þjónustu þeirra," segja Samtök ferðaþjónustunnar.///hvað segir fjármálaráðherra við þessu og Forsætisráðherra ,er þetta þeirra flokka rettur ekki annarra,svik eru svik og bar að fara með þau svo,þetta fólk er löngu komið með meira en nóg til að fara fyrir  dóm og segja af ser eða er það ekki :svari hver fyrir sig/Halli gamli


mbl.is Komast hjá virðisaukaskatti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 45
  • Frá upphafi: 1045676

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 42
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband