Kaupa hlut í HS Orku /Nú er mál að taka á málum!!!Hver gefur leyfi fyrir þessu??,nóg annað sem þarf að nota þessa peninga,:verklegar framkvæmdir!!!

Kaupa hlut í HS Orku
Innlent | mbl.is | 31.5.2011 | 13:12

Mynd 558658Lífeyrissjóðirnir fjórtán, sem undanfarna mánuði hafa skoðað möguleg kaup á hlut í HS Orku hafa í kjölfar ítarlegrar skoðunar gengið frá samningum um kaupin við dótturfélag Alterra Power (áður Magma Energy).

Lífeyrissjóðirnir hafa stofnað samlagshlutafélagið Jarðvarma slhf. til að halda utan um eignarhlutinn fyrir hönd sjóðanna. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Þeir lífeyrissjóðir sem standa að baki kaupunum eru Almenni lífeyrissjóðurinn, Eftirlaunasjóður FÍA, Festa lífeyrissjóður, Frjálsi lífeyrissjóðurinn, Gildi lífeyrissjóður, Lífeyrissjóður bænda, Lífeyrissjóður starfsmanna Búnaðarbanka Íslands, Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins – A deild, Lífeyrissjóður verkfræðinga, Lífeyrissjóður verzlunarmanna, Lífeyrissjóður Vestmannaeyja, Stafir lífeyrissjóður, Stapi lífeyrissjóður og Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda.
 
Fram kemur að lífeyrissjóðirnir hafi skoðað fjárfestingu í HS Orku um nokkurt skeið og hafi ákveðið um miðjan apríl sl. að halda áfram viðræðum við Alterra Power um mögulega fjárfestingu í HS Orku og hefja áreiðanleikakönnun á félaginu. Þá hafi þegar legið fyrir helstu útlínur viðskiptanna og skilmálar.
 
„Samkvæmt samkomulaginu kaupir Jarðvarmi 25 prósent hlutafjár í HS Orku á genginu 4,63 krónur á hlut. Kaupverðið nemur því tæpum 8,1 milljarði króna og er miðað við að greiðslan fari fram á morgun 1. júní. Jarðvarmi fær jafnframt kauprétt á nýjum hlutum í HS Orku á genginu 5,35 krónur á hlut en verði kauprétturinn nýttur að fullu verður eignarhlutur Jarðvarma í HS Orku 33,4 prósent. Samkomulagið felur einnig í sér rétt Jarðvarma til að skrá sig fyrir allt að helmingi heildarhlutafjár HS Orku með kaupum á nýjum hlutum sem HS Orka kann að gefa út í framtíðinni.
 
Jarðvarmi mun tilnefna tvo af fimm stjórnarmönnum HS Orku. Rík minnihlutavernd, virk þátttaka í stjórn félagsins og formleg aðkoma að öllum meiriháttar ákvörðunum á vegum félagsins eru meðal skilmála viðskiptanna og helst það fyrirkomulag ótímabundið, nemi eignarhlutur Jarðvarma í HS Orku meira en 22,5 prósentum heildarhlutafjár,“ segir í tilkynningunni.

Þá kemur fram að ráðgjafi lífeyrissjóðanna í þessum viðskiptum hafi verið Arctica Finance, sem hafi haft yfirumsjón með kaupferlinu. LEX hafði umsjón með lögfræðilegri áreiðanleikakönnun og lögfræðiráðgjöf við samningagerð, PwC sá um fjárhagslega og skattalega áreiðanleikakönnun og Reykjavík Geothermal sá um jarðfræðilega, tæknilega og rekstrarlega áreiðanleikakönnun.////nú finnst manni nóg komið og vel  það þetta eru bara afglöp að nota sjóðina i þetta ekki sem um var samið að setja af stað arðbært verk og framkvæmdir mannfrekar og atvinnu,þetta kannski stuðlar að samningum við Helguvik?? en það er svo að manni finnst þetta bara ekki við hæfi als ekki/Halli gamli 
 


mbl.is Kaupa hlut í HS Orku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.5.): 6
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 47
  • Frá upphafi: 1045722

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 44
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband