Óvíst hvað hindrar framlengingu samninga//// Það ber að semja,ekki bara a annan vegin!!!!

Óvíst hvað hindrar framlengingu samninga
Innlent | mbl | 3.6.2011 | 11:17

Bjarni Benediktsson í ræðustóli á Alþingi. Ógerningur er að greina það fyrirfram, hvaða forsendur geta valdið því að nýtingarsamningar við útgerðarmenn verði ekki framlengdir umfram 15 ár. Þetta sagði Jón Bjarnason í framsöguræðu sinni um kvótamálið á Alþingi í dag. Sætti hann ásökunum um að huga ekki að hagkvæmni veiða í frumvarpi sínu.

Rétturinn til viðræðna um framlengingu samninganna einskorðast við að aðilar sem hafa staðið við allar skuldbindingar geti óskað eftir viðræðum um framlengingu. Er þetta einnig með fyrrivara um heimild Alþingis til frekari breytinga á fiskveiðistjórnunarkerfinu og í annan stað að aðrar forsendur hafi ekki breyst frá upphaflegri samningsgerð, sagði Jón.

Sagði Jón að í þessu samhengi yrði litið til meginreglna samningalaga um brostnar forsendur.

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, varð fyrstur til að veita andsvar við ræðu Jóns, sagði hann þar að ráðherra hefði ekki talað mikið um hagkvæmni veiðanna í framsöguræðu sinni. Spurði hann, í ljósi þess að veiðiheimildir væru að mestu leyti á landsbyggðinni nú þegar, hvaða réttlæti væri í því að taka aflaheimildir af þeim sem hefðu keypt þær í núgildandi kerfi, til að ráðherra gæti ráðstafað þeim eftir eigin höfði til einhverra annarra.

Jón svaraði Bjarna með því að gætt væri mjög vandaðs meðalhófs í frumvarpinu, en að þjóðin vildi þó afdráttarlausar breytingar á kerfinu, sem engin sátt væri um. Að sjálfsögðu ætti þó að gæta að því að útgerðirnar yrðu rekstrarlega hagkvæmar.

Bjarni spurði þá hvort það að leyfa framsal veiðiheimilda hefði á sínum tíma verið mistök hjá Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingrími J. Sigfússyni, sem sæti áttu í ríkisstjórn í upphafi 10. áratugarins, þegar það var heimilað.

Ekki svaraði Jón því sérstaklega í svari sínu við andsvari Bjarna, en sagði að ekki ætti að markaðsvæða byggðir landsins svo að þær gætu þurft að lúta í gras þrátt fyrir að vera staðsettar rétt við fengsæl fiskimið, rétt undan ströndum landsins.

„Er arðbært að leggja niður heilt byggðarlag og gera allar eignir þar verðlausar?" spurði Jón Bjarnason á móti og vísaði til þess að hagkvæmni sjávarútvegsins gæti miðast við fleira en efnahagsreikninga útgerðarfyrirtækja. ,,Ég tel að þingmaðurinn ætti að hverfa frá algjörri markaðshyggju sinni og taka þátt í enduruppbyggingu sjávarútvegsins sem við hér leggjum til," sagði Jón.////Þetta sjá allir sem vilja að það ber að semja og það a baða vegu.annars engin satt að manni finnst,samningar eru ekki bara a annan vegin,ef ekki fer illa ,ekki spurning/Halli gamli


mbl.is Óvíst hvað hindrar framlengingu samninga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 1045715

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 46
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband