Eyjólfur sá síðasti til að skora á móti Dönum/það vonandi breytist núna,það er þá liðið sem tekur völdin ekki þjálfarin !!!

Eyjólfur sá síðasti til að skora á móti Dönum
Íþróttir | mbl.is | 4.6.2011 | 9:02

Eyjólfur í leik með landsliðinu gegn Frökkum árið 1999.Íslendingar hafa ekki riðið feitum hesti í viðureignum sínum gegn Dönum en þjóðirnar mætast í undankeppni EM á Laugardalsvellinum í kvöld. Í 21 leik sem þjóðirnar hafa mæst hafa Danir unnið 17 leiki og fjórum leikjum hefur lyktað með jafntefli.

Íslendingar hafa ekki náð að skora í fjórum síðustu leikjum sínum á móti Dönum. Sá síðasti sem skoraði á móti Dönum var Eyjólfur Sverrisson í 2:1 tapi á Laugardalsvellinum í undankeppni HM í september árið 2000. Eyjólfur skoraði framhjá Peter Schmeichel. Hermann Hreiðarsson og Eiður Smári Guðjohnsen voru í byrjunarliði Íslands í þeim leik en þeir byrja báðir inná í kvöld.

Danir hafa unnið síðustu fimm leiki sína gegn Íslendingum og markatalan í þeim leikjum er, 14:1. Ísland náði síðast stigi gegn Dönum í vináttuleik fyrir 20 árum en þjóðirnar gerðu markalaust jafntefli á Laugardalsvelli í september 1991.////við erum núna að vona að þetta breytist núna,það er að segja að liðið okkur taki völdin og vinni,ekki finnst manni að þjálfarinn geri það þó  hann hafi brosað i gær sem hann hefur ekki gert lengi,ég segi það hikstalautt að hann er akisarhællin á liðinu,skiptið um þjálfara/Halli gamli


mbl.is Eyjólfur sá síðasti til að skora á móti Dönum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 7
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 55
  • Frá upphafi: 1045694

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 52
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband