Afhentu kirkjuþingi skýrslu/ Maður er hissa að þessu skuli fram haldið,kirkjunni ekki til framdráttar???

Afhentu kirkjuþingi skýrslu
Innlent | mbl.is | 10.6.2011 | 8:46

Rannsóknarnefnd kirkjunnar afhenti forsætisnefnd... Rannsóknarnefnd þjóðkirkjunnar skilaði forsætisnefnd kirkjuþings í morgun skýrslu um starfshætti og viðbrögð kirkjunnar vegna ásakana á hendur Ólafi Skúlasyni, biskupi, um kynferðisbrot

„Ég fagna því að þessari rannsókn er lokið og þessi rannsóknarskýrsla er nú komin fram,“ sagði Pétur Kr. Hafstein, forseti kirkjuþings og formaður forsætisnefndar kirkjuþings, við mbl.is áður en rannsóknarnefndin kynnti skýrsluna formlega í Grensáskirkju í morgun.

Þeir Róbert Ragnar Spanó og Þorgeir Ingi Njálsson, sem skipa rannsóknarnefndina, ásamt Berglindi Guðmundsdóttur,  afhentu Pétri Kr. Hafstein, Margréti Björnsdóttur og Magnúsi E. Kristjánssyni, sem sitja í forsætisnefnd kirkjuþings, skýrsluna í Grensáskirkju í morgun.

Rannsóknarnefndin átti að leggja mat á hvort um mistök, vanrækslu eða vísvitandi þöggun eða tilraun til þöggunar hafi verið að ræða af hálfu vígðra þjóna og starfsmanna kirkjunnar, eða annarra þeirra sem gegnt hafa trúnaðarstörfum í þágu kirkjunnar, eftir að ásakanir um kynferðisbrot voru komnar fram og hverjir kunni að bera ábyrgð á því.

Boðað hefur verið til blaðamannafundar klukkan 10:30 þar sem efni skýrslunnar verður kynnt. Þá hefur kirkjuþingið verið kallað saman á þriðjudag til þess að ræða skýrslu rannsóknarnefndarinnar og taka ákvörðun um frekari aðgerðir sem nauðsynlegar kunna að vera. Pétur segir að gert sé ráð fyrir að þingið muni standa yfir í einn dag. Þar meti menn stöðuna og fari yfir efni skýrslunnar.

„Það var kirkjuþing, sem er æðsta stofnun í kirkjunni og er að meirihluta skipuð leikmönnum, sem ákvað það einum rómi á síðasta kirkjuþingi, að stofna til þessarar rannsóknar. Þess vegna fannst mér einboðið að kirkjuþingið sjálft þyrfti að koma saman strax og skýrslan lægi fyrir til þess að taka við efni hennar og vega og meta það sem þar kemur fram. Og eftir atvikum að setja í málnefnanlegan farveg eitthvað af því sem ábendingar nefndarinnar kunna að lúta að,“ sagði  Pétur.

Kirkjuþing kemur saman 14. júní nk. til að ræða og fara yfir niðurstöðurnar.
////Persónulega er maður ekki sáttur við þessa skoðun Kirkjunnar,um faðmliðin mann og biskup Séra Ólaf Skúlason og yfirleitt orð á móti orði eitt vitni sem er látið!!!!ef saga hennar yrði öll skráð er kannski í lagi að geta þessa sé ekki er sannað en svo margt annað er það,að kosta þessu til er okkur  sem erum trúuð og kirkjurnar fólk ,er ekki sættir þarna als ekki,Ég mun ekki telja þetta til kosta að taka menn af lífi dauðan,semsagt þetta er bara nornaveiðar,og ekkert annað að mínu mati,og bara skömm/Halli Gamli


mbl.is Afhentu kirkjuþingi skýrslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tómas Waagfjörð

Ertu að spauga? Maðurinn er jafn sekur syndinni.

Tómas Waagfjörð, 10.6.2011 kl. 18:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 1045708

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 48
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband