Skýrsla rannsóknarnefndar birt///búin að lesa hana engu nær um sök???????

Skýrsla rannsóknarnefndar birt
Innlent | mbl.is | 10.6.2011 | 10:35

Rannsóknarnefnd kirkjunnar kynnir skýrsluna í... Meta ber framgöngu einstakra vígðra þjóna og annarra starfsmanna þjóðkirkjunnar á árinu 1996 í því ljósi að ásakanir, sem komu fram um kynferðisbrot beindust að æðsta yfirmanni kirkjunnar og hirði prestanna, sjálfum biskupnum.

Þetta kemur m.a. fram í skýrslu rannsóknarnefndar þjóðkirkjunnar, sem birt var í dag umstarfshætti og viðbrögð kirkjunnar vegna ásakana á hendur Ólafi Skúlasyni, biskupi, um kynferðisbrot.

Í skýrslunni segir ljóst,  að þegar Sigrún Pálína Ingvarsdóttur lagði fram erindi sitt 25. janúar 1996 til formlegrar meðferðar hjá siðanefnd og stjórn Prestafélags Íslands hafi atvik átt sér stað innan þjóðkirkjunnar sem settu svip sinn á viðhorf stjórnar og nefndarmanna til málsins og málsmeðferð í siðanefndinni og stjórn félagsins, og einnig á vettvangi kirkjuráðs og Prófastafélags Íslands.

Hafi þessi aðstaða leitt til þess að tilhneigingar hafi gætt í þá átt að litið væri á ásakanir Sigrúnar Pálínu, Dagbjartar Guðmundsdóttur og Stefaníu Þorgrímsdóttur sem lið í „valdabaráttu“ á milli stuðningsmanna og andstæðinga biskups og það jafnvel álitið að þær væru beinlínis settar fram fyrir tilstuðlan þeirra síðarnefndu til að „koma höggi á“ biskup.

Þá verði ótvírætt ráðið af framburði þeirra, sem komu fyrir nefndina, að áhrif Ólafs Skúlasonar á samstarfsmenn sína og aðra starfsmenn kirkjunnar hafi verið verulega mikil. Hafi hann með framgöngu sinni haft mótandi áhrif á aðgerðir  einstaklinga sem að málinu komu, hvort sem er á vettvangi kirkjuráðs,  Prófastafélags Íslands eða stjórnar Prestafélags Íslands.

Þá liggi fyrir að Ólafur Skúlason biskup hafi sjálfur gerst sekur um trúnaðarbrot
við meðferð málsins á árinu 1996. Grunsemdir hafi verið uppi um að trúnaðarupplýsingum hafi verið „lekið“, annaðhvort til fjölmiðla og/eða til biskups, af hálfu stjórnarmanna í Prestafélagi Íslands sem fjölluðu um málið í janúar, febrúar, mars og apríl 1996. Rannsóknarnefndin hafi hins vegar ekki forsendur til að skera úr um þetta atriði.

Rannsóknarnefndin gerir sérstakar athugasemdir við þá ákvörðun sr. Baldurs Kristjánssonar, varaformanns stjórnar Prestafélags Íslands, sem á þessum tíma gegndi trúnaðarstarfi gagnvart biskupi sem biskupsritari og ritari kirkjuráðs, að sitja áfram fundi stjórnarinnar í febrúar og mars 1996 þar sem erindi  kvennanna þriggja voru til umfjöllunar af hálfu stjórnarinnar.

Þá verði líka að telja það ámælisverð vinnubrögð af hálfu stjórnarinnar að krefjast þess ekki þegar í stað að Baldur viki sæti í stjórninni þegar „biskupsmálið“ var komið á borð stjórnarinnar í lok janúar 1996, enda var þess ekki að vænta að hann gæti litið óhlutdrægt á málavexti í ljósi trúnaðarsambands síns við biskup./////// var að lesa skírsluna og er engu nær um sekt Biskups þetta er bara orð á móti orði og þvæla og röfl sem einginn getur staðfest,við sem höfum fylgst með þessu allan tíman erum engu nær ,vitum að það er óeining innan kirkjunar og hefur alltaf verið !!!! þetta breytir því ekki,en kannski flýtir fyrir algjörum aðskilnaði Ríkis og Kirkju/Halli Gamli


mbl.is Skýrsla rannsóknarnefndar birt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 13
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 48
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband