Hrina í Geitlandsjökli/hvað segir þetta okkur þessir skjálftar siðustu daga???

Hrina í Geitlandsjökli
Innlent | mbl.is | 18.6.2011 | 10:51

Langjökull. Upp úr klukkan átta í morgun varð jarðskjálftahrina í Geitlandsjökli í sunnanverðum Langjökli og stóð hún yfir í um fimmtán mínútur. Stærstu skjálftarnir voru rúmlega þrjú stig og fundust meðal annars í Húsafelli.
Stærsti skjálftinn mældist 3,2 stig.

Einn skjálfti varð síðan upp úr klukkan 9 og var hann mun minni. Allt hefur verið með kyrrum kjörum síðan á svæðinu, samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands.

Síðdegis í gær var jarðskjálftahrina í Mýrdalsjökli  og mældist stærsti skjálftinn þar rúm 3 stig. Í morgun hefur einn skjálfti þar mælst yfir tvö stig, samkvæmt óyfirförnum tölum á vef Veðurstofunnar////Hvað segir þetta okkur ,hvað segja Vísindamenn er þetta bara svona venjulegt eða hvað er eitthvað i gangi sem gæti farið af stað gos eða svoleiðis,þetta er spurning til þeirra blessaðra sem allt eiga að vita/Halli gamli


mbl.is Hrina í Geitlandsjökli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir

Já það væri fróðlegt að heyra eitthvað um það hvort það sé búist við gosi á þessu svæði..

Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 18.6.2011 kl. 14:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 45
  • Frá upphafi: 1045676

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 42
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband