Funda um samgöngumálin/bara að ráðst í framkvæmdir og vegagerð,við borgum nóg í eldsneytisgjald,sem er veggjald!!!

Funda um samgöngumálin
Innlent | mbl.is | 19.6.2011 | 13:36

Ögmundur Jónasson. Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, hefur boðað til fundar síðdegis í dag með fulltrúum atvinnurekenda og launþega þegar  til að ræða samgöngumál.

 Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, hefur sagt að forsendubrestur sé fyrir kjarasamningum þar sem ríkisstjórnin hafi ekki efnt loforð sín. Ögmundur segir að enginn forsendubrestur sé til staðar.

„Þetta er ekki forsendubrestur. Það voru engin önnur loforð gefin en að skoða þessi mál og það voru engin fyrirheit gefin um að teknir yrðu upp vegatollar,“ segir Ögmundur.

„Við munum funda núna síðdegis um samgöngumálin. Það var stefnt að því að ráðast í flýtiaðgerðir í vegamálum sem fjármagna átti með vegatollum. En veruleikinn er sá að andstaða gegn vegatollum hefur aukist mikið að undanförnu.“

Ögmundur segist hafa orðið mjög var við aukna andstöðu við vegatolla. „Ég fékk á sínum tíma 40.000 undirskriftir gegn þeim og það eru skilaboð sem ég tek mjög alvarlega. Við erum eftir sem áður að verja gríðarlegum fjármunum í samgönguframkvæmdir. “

Hann bætir við að rætt verði við Vegagerðina um hvers konar framkvæmdir skapi flest störf. „Það eru jafnframt ekki endilega dýrustu framkvæmdirnar sem skapa flest störf.“

Fulltrúar launþega og atvinnurekenda hafa frest til þriðjudags til að ógilda kjarasamningana telji þeir stjórnvöld ekki hafa uppfyllt sitt hlutverk. //////Hverjum er Ögmundur að segja að við borgum ekki nóg af bensini  Olíum og tollum á Bifreiðum og virðisauka,   ekki okkur sem vitum betur það eru til nógir peningar til þessa,ef þeir væru ekki notaðir í annað,svo getur lífeyrissjóðir lánað' i þetta og fengið góðar rentur fyrir,ekki spurnin,annað er bara fáviska/Halli gamli


mbl.is Funda um samgöngumálin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 13
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 48
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband