Shinawatra sigraði í Taílandi/frábært að fá konu þarna sem Forsætisráðherra!!!

Shinawatra sigraði í Taílandi
Erlent | AFP | 3.7.2011 | 15:12

Stuðningsmenn Thaksin Shinawatra, hins útlæga fyrrverandi forsætisráðherra Taílands, unnu mikinn sigur í kosningum þar í landi í dag. Sigurinn þykir merkilegur en tvö átakamikil ár eru frá því honum var steypt af stóli í valdaráni hersins.

Abhisit Vejjajiva, forsætisráðherra, viðurkenndi ósigur og óskaði stjórnarandstöðunni til hamingju. Yngsta systir Thaksins, Yingluck Shinawatra, fór fyrir stjórnarandstöðunni í kosningabaráttunni. Hún verður væntanlega fyrsta konan sem verður forsætisráðherra í Taílandi.

Þegar um 97% atkvæða höfðu verið talin hafði Puea Thai flokkur Shinawatra fengið meirihluta þingsæta eða 263 sæti af 500. Það var mun meira en Lýðræðisflokkur Abhisit sem fékk 161 sæti, samkvæmt upplýsingum frá kjörstjórn.////þetta er frábært, að þarna sigarði kona og verður Forsætisráherra,eins og sagt er  var faðir hennar steypt af stóli þó vinsæll væri,en nú er afgerandi að dóttir hana sem var i framboði kemst að,og hefi ég talað við fólk þarna sem segir að þetta sé mjög svo gott/Halli gamli


mbl.is Shinawatra sigraði í Taílandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 1045793

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband