Vilja tryggja hagsmuni landbúnaðar/það er það sem við viljum flest!! en samt er hamrað á að eyða þeim upp!!!

Vilja tryggja hagsmuni landbúnaðar
Innlent | mbl.is | 6.7.2011 | 18:18

 Haraldur Benediktsson formaður BÍ, Eiríkur Blöndal... Nauðsynlegt er að tryggja hagsmuni íslensks landbúnaðar, að mati Bændasamtaka Íslands, komi til aðildar Íslands að Evrópusambandinu.

Samtökin telja mikilvægt að hagsmunir bændastéttarinnar verði metnir í heild og með hliðsjón af byggðasjónarmiðum, neytendamálum og fæðuöryggi. Bændasamtökin hafa dregið upp varnarlínur sem þau telja lágmarkskröfur í yfirstandandi samningaviðræðum við ESB. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá samtökunum.

Í dag kom út bók eftir eftir Stefán Má Stefánsson, prófessor við lagadeild HÍ. En Stefán skrifaði bókina að beiðni Bændasamtakanna, samkvæmt fréttatilkynningu Bændasamtakanna.

Bókin ber heitið Landbúnaðarlöggjöf Evrópusambandsins og Evrópska efnahagssvæðisins.

Er hluti af vinnu Bændasamtakanna í áratug

„Verkið er hluti af viðamiklu efni upplýsinga og rannsókna sem Bændasamtökin hafa unnið að í um áratug. Þar eru varnarlínur BÍ settar fram og rökstuddar með tilvísun í regluverk ESB og þeirrar hagsmunagæslu sem íslensk stjórnvöld þurfa að beita í aðildarviðræðunum.  Mikilvægt er að málefnaleg umræða fara fram um sérstöðu og kröfur Íslands nú þegar samningaviðræður eru formlega hafnar," segir í fréttatilkynningu.

Bændasamtökin munu óska eftir fundi með hinni sameiginlegu þingmannanefnd ESB og Íslands, næst þegar hún kemur saman á Íslandi til að kynna afstöðu sína og aðkomu að aðlögunarferlinu. Samtökin hafa einnig sent sjávarútvegs- og landbúnaðaráðherra bréf, þar sem óskað er eftir skýringum á hvernig staðið verði að mótun samningsmarkmiða Íslands og á hvaða forræði slík markmið yrðu endanlega mörkuð.//////við sem höfum lifað tímana tvenna,vitum að i gamla Alþýðuflokknum var alltaf áróður á móti bændum,og það magnast nú i samfylkingu ekki spurning að koma okkur i ESB og með því að eyða landbúnaði á Íslandi ekki spurning ef tollar yrði teknir af er þetta ekkert sambærilegt,og allur búskapur á Íslandi hætta ,siðar þegar það væri búið hækkar allt,eða svo hugsa ég um þetta og sennilega flestir/Halli gamli

 


mbl.is Vilja tryggja hagsmuni landbúnaðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 1045797

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 49
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband