Auðlindanefnd skipuð /Ja hérna er það nú nefndir á nefdir ofan og kostnaður!!!!

Auðlindanefnd skipuð
Innlent | mbl.is | 8.7.2011 | 16:09

Stjórnarráðið. Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, hefur skipað nefnd um stefnumörkun ríkisins í auðlindamálum. Á nefndin að skila skýrslu til ríkisstjórnarinnar fyrir 1. desember.

Ríkisstjórnin samþykkti í maí sameiginlega tillögu forsætisráðherra og fjármálaráðherra um að skipa nefnd til að setja fram tillögur um almenna stefnu sem lögð verði til grundvallar gjaldtöku fyrir nýtingu á auðlindum þjóðarinnar og annarra takmarkaðra gæða, umsýslu þessara réttinda og meðferð tekna sem hún skapar.

Nefndina skipa eftirtalin:

Arnar Guðmundsson, formaður, tilnefndur af forsætisráðherra
Indriði H. Þorláksson, tilnefndur af fjármálaráðherra
Svanfríður Jónasdóttir, tilnefnd af efnahags- og viðskiptaráðherra
Gunnar Tryggvason, tilnefndur af iðnaðarráðherra
Bjarni Harðarson, tilnefndur af sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra
Álfheiður Ingadóttir, tilnefnd af umhverfisráðherra. 

Hlutverk nefndarinnar er í fyrsta lagi að setja fram almenna og heildstæða stefnumörkun varðandi ráðstöfun nýtingarréttar á auðlindum og ráðstöfun ýmissa réttinda sem ríkið ræður yfir, svo sem nýtingarréttar á þjóðlendum, vatnsafli, jarðvarma, ferskvatni, fiskistofnum, fjarskiptatíðnum, námum og kolvetnum í jörðu, auk losunarheimilda, en hún þarf jafnframt að vera þannig að hægt sé að útfæra hana með sértækari hætti fyrir einstök málefnasvið.

Við vinnu sína skal nefndin vinna út frá þeim forsendum að nýtingarrétti auðlinda í eigu þjóðarinnar skuli aldrei úthlutað nema tímabundið, gegn gjaldi og með gegnsæjum hætti á grundvelli jafnræðissjónarmiða.

Í öðru lagi er nefndinni ætlað að móta almenna stefnumörkun um ráðstöfun þess arðs sem hlýst af nýtingu auðlindanna og hinna takmörkuðu gæða. Skal stefnumörkunin byggja á að sú ráðstöfun sé vel skilgreind, sýnileg og skipt með réttlátum hætti.

Í þriðja lagi skal nefndin marka stefnu um umsýslu framangreindra réttinda og arðs af nýtingu þeirra. Er nefndinni ætlað að greina og leggja mat á hvort færa eigi á eina hendi innan stjórnsýslunnar, og þá eftir atvikum í ráðuneyti eða stofnun, forræði yfir og ráðstöfun þeirra auðlinda og réttinda sem hér um ræðir og fallið gætu undir Auðlindasjóð.///vinavæðing og kostnaður og nefndir, eru það sem þessi ríkisstjórn afrekar,ekkert að hugsa annað en hvernig megi mjólka okkur eins og hægt er,og skoða hvað hægt er að hirða af öllu skattur og skattur er það sem þau eiga sameiginlegt,og hver borgar við það er malið engin annar/,er ekki nóg komið af sköttum/Halli gamli 


mbl.is Auðlindanefnd skipuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 6
  • Sl. sólarhring: 15
  • Sl. viku: 54
  • Frá upphafi: 1045704

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband