Unnið allan sólarhringinn/ þarna er allt gert ,og bara gott,en það þarf víðar !!!!

Unnið allan sólarhringinn
Innlent | mbl.is | 10.7.2011 | 13:20

Brúin yfir Múlakvísl gaf sig undan straumþunganum í gærmorgun.Gert er ráð fyrir að unnið verði allan sólarhringinn við smíði bráðbirgðabrúar yfir Múlakvísl. „Það verður unnið eins hratt og mögulegt er og aðstæður leyfa,“ segir Hreinn Haraldsson, vegamálastjóri um byggingu brúarinna.

„Þarna verða brúarsmiðir með vinnuflokka og unnið verður á svipaðan hátt og áður hefur verið gert við svipaðar aðstæður,“ segir Hreinn.

Hann segir að ekki sé búið að skipuleggja vinnutíma vinnuflokkanna. „En það verður unnið meira eða minna allan sólarhringinn.“

Að sögn Hreins rekur Vegagerðin tvo brúarvinnuflokka sem hafa verið að störfum í allan vetur og voru þeir komnir í sumarfrí. „Þeir voru að byrja í sínu fríi og það þurfti bara að kalla þá úr fríum.“

„Í dag er verið að vinna með jarðvinnutækjum að því að laga veginn að bráðabirgðabrúarstæðinu og á morgun á allt að vera tilbúið til að reka staura undir brúna,“ segir Hreinn.

Hann segir að brúin verði  staðsett rétt ofan við brúna, sem fór í gær, hún verði tengd inn á endann á gamla hringveginum, sem liggur þar skammt fyrir ofan. Garður standi út í fljótið austan megin og þar muni brúin tengjast inn á.

//////Það er gott dæmi þarna að vera vitur eftirá,það hefði löngu átt að vera búið að gera þetta betur þessa  brú,á synum  tíma þegar hún for var talað um að byggja ekki dyra brú hún gæti farið og þá minna tjón ,en við erum búið að búast við svona hlaupi eða gosi árum saman en ekkert berið gert,það hefði a´að gera hærri brá og varanagarða stærri báðu megin fyrir löngu,en svo er þetta bara og verður dýrara að byggja fyrst braðabyrgðabrú ,og svo að ári betri brú og varanlegri ,en svo er þetta og ekki annað í stöðunni!! en það má laga fjallabarsleiðina einnig sem varaveg og hafa færan fólksbilum/þetta er það sem þarf og hefði átt að gera fyrirlöngu!!!/Halli gamli


mbl.is Unnið allan sólarhringinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 1045798

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband