Vill sniðganga Gylfa///Þessu verður að framfylgja niður með Gylfa ESB sinnan!!!!

Vill sniðganga Gylfa
Innlent | mbl.is | 16.7.2011 | 19:28

Ásmundur Einar Daðason að merkja fé í fjárhúsunum á Lambeyrum. Ásmundur Einar Daðason, þingmaður Framsóknarflokksins í Norðvestur-Kjördæmi, spyr í fyrirsögn á bloggi sínu í dag hvort tími sé kominn tími á að sniðganga Gylfa  Arnbjörnsson.

Líkt og fram hefur komið þá hvetur forseti ASÍ, Gylfi Arnbjörnsson, fólk til að sniðganga lambakjöt ef það hækkar um 25% í verði í haust, í viðtali við Fréttablaðið í dag.

Nær nýjum hæðum fyrir Samfylkinguna

„Gylfi Arnbjörnsson, einn helsti leiðtogi alþýðu þessa lands,  fer mikinn gegn íslenskum landbúnaði í dag. Hann tekur upp málflutning Samfylkingarinnar og ræðst á íslenska matvælaframleiðslu. Það er mjög sérstakt að forseti ASÍ skuli hvetja Íslendinga til að sniðganga innlenda framleiðslu á sama tíma og gjaldeyrir er af skornum skammti og atvinnuleysi í hæstu hæðum. Maður hefði haldið að það ætti að vera keppikefli Alþýðusambandsins að auka innlenda framleiðslu á öllum sviðum.  

Vaskleg framganga Gylfa fyrir stefnumálum Samfylkingarinnar nær nú nýjum hæðum og það er kannski ekki að ástæðulausu sem gárungarnir segja að hann starfi sem vinstri hönd Jóhönnu Sigurðardóttur og Samfylkingarinnar. Það voru fáir sem börðust harðar gegn almennri skuldaleiðréttingu heimilanna í landinu. Barátta hans fyrir samþykkt Icesave samningana er flestum í fersku minni en þar tók hann stöðu með þeim sem vildu að alþýða landsins ábyrgðist skuldir fallinna einkabanka.  Öllum er einnig ljóst að hann notar hvert tækifæri til baráttu sinnar fyrir ESB aðild.   

Nú fjallar hann um samráð bænda gegn fólkinu í landinu. Það væri kannski rétt hjá forseta ASÍ að skoða ástæður þess að íslenskar landbúnaðarafurðir hafa haldið verðbólgunni niðri frá hruni á meðan innflutt matvæli hafa hækkað hana. Man heldur nokkur eftir því að Gylfi Arnbjörnsson hafi gert athugasemdir við að stórkaupmenn og milliliðir taki aukinn hlut í útsöluverði? Hvað tefur forseta alþýðunnar að taka þann slag?  

Ég trúi því ekki að allir félagsmenn sambandsins séu sammála þeirri vegferð sem forsetinn er á," skrifar Ásmundur Einar á bloggvef sinn.////////Ég held að þetta séu orð í tíma töluð hjá Ásmundi  Einari Daðasyni,þetta er svo frekleg áskorun að það hálfa væri nóg!!að við Íslensk alþýða færum að vinna á móti bændum og bændastétt,við  erum ekki að eiga við þetta sem Alþýðuflokkur gerði á sínum tíma þegar bændur voru stóreignamenn og og máttu sín mikils,en það þurfti bara ekki til þeir voru alltaf á móti þeim og vildu þá feiga og vilja ennþá,og koma okkur í ESB .þá er búskapur á okkar landi feigur ekki spurning,þetta er í samfylkingu enn og verður það,þar til hún leggst niður,skömm bara og ekkert annað,/Halli Gamli


mbl.is Vill sniðganga Gylfa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Sammála ef ég get á einhvern hátt sniðgengið þennan vindbelg þá mun ég gera það.  En íslenskar landbúnaðarvörur mun ég kaupa stolt hér eftir sem hingað til.  Helst vildi ég sjá meira úrval beint frá býli til að styrkja bændurna sjálfa en ekki afæturnar sem aféta bæði okkur og þá.  Sláturleyfishafar, og vinnslurnar og síðan með að rétta áfurðina yfir búðarborðið allir taka til sín meira en bóndinn fær.   Segi og skrifa.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 16.7.2011 kl. 23:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 1045716

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 47
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband