Sætir ámæli fyrir þögn/það er ekki allt fengið með gasprinu all ekki,það er komið af þvi nóg!!!

Sætir ámæli fyrir þögn
Erlent | mbl.is | 31.7.2011 | 13:41

Fólk hefur haldið áfram að leggja blóm og kerti á torgið...Frederik Reinfeldt, forsætisráðherra Svíþjóðar, sætir nú ámæli í heimalandi sínu fyrir að hafa lítið fjallað um hryðjuverkaárásirnar í nágrannalandinu Noregi. Í dag kom fram, að Reinfeldt fór í frí til Tyrklands sl. sunnudag ásamt konu sinni, tveimur dögum eftir árásirnar í Noregi.

Reinfeldt flutti ræðu daginn eftir árásirnar þar sem hann fordæmdi þær og sama dag ræddi hann við Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs, í síma. Að öðru leyti hefur hann ekkert látið málið til sín taka.

Sænska blaðið Aftonbladen spurði í leiðara í síðustu viku: Hvar ert þú, Reinfeldt?  Vísaði blaðið m.a. til þess, að Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, heimsótti norska sendiráðið í Washington í vikunni og skrifaði í minningarbók.  

Í dag segir Aftonbladet, að Reinfeldt hafi farið til sumarleyfisbæjarins Antalya  í Tyrklandi sl. sunnudag ásamt konu sinni og öryggisvörðum. Ekki hafa fengist upplýsingar um hve lengi hann verður í fríi. Reinfeldt hefur þó boðað, að hann muni um næstu helgi heimsækja heimsmót skáta, sem haldið er í Kristianstad.

Markus Friberg, upplýsingafulltrúi Reinfeldts, vildi ekki tjá sig um málið, og segir einnig, að forsætisráðherrann ætli ekki að tjá sig um gagnrýnina sem hann sætti.

Ungliðahreyfing sænska Jafnaðarmannaflokksins hefur einnig gagnrýnt Reinfeldt fyrir fjarveruna og benti m.a. á, að forsætisráðherrann hefði ekki tekið þátt í neinum minningarathöfnum, sem skipulagðar voru í Svíþjóð vegna hryðjuverkanna í Noregi.  

Svenska Dagbladet hefur eftir stjórnmálafræðingnum Ulf Bjereld, að Reinfeldt hefði átt að leiða sorgarferlið í Svíþjóð. Nú þyki mörgum, sem hann hafi ekki gert sér fulla grein fyrir alvöru málsins. Í sama streng tekur Peter Wolodarski, stjórnmálaritstjóri Dagens Nyheter, í dálki. ///////Maður er nú ekki alveg sammála þessu gasprið um hlutina er ekki alltaf það sem þarf !!!það er orðið að mínu áliti einum of það hefur engan tilganga að snúa allur við i heiminum út af Þessu gjörðu!! sem er voðaverk en ekki bætir það að allir sé með þetta á heilsanum  blöð og fjölmiðlar og svo sögur a´sögur á sögur ofan og þær ekki allar réttar,þessi voðverk eru slæm fyrir viðkomandi en hinir verð að fa´að lifa i friði,þessi mál eru ekki leyst i blöðum og fjölmiðlum,heldur er ekkert athugavert við Forsætisráherra Svía að mínu mati /Halli gamli


mbl.is Sætir ámæli fyrir þögn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 39
  • Frá upphafi: 1045653

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband