12.253 atvinnulausir í júlílok / þetta mun aukast með haustinu ef ekkert er gert við því!!!!

12.253 atvinnulausir í júlílok
Innlent | mbl.is | 12.8.2011 | 12:36

Atvinnuleysi dróst saman um 0,1% á milli mánaða. Í lok júlí voru 12.253 manns atvinnulausir í landinu. Skráð atvinnuleysi í landinu var að meðaltali 6,6% í mánuðinum samkvæmt Vinnumálastofnun og lækkaði um 0,1% milli mánaða. Ástandið var því ögn skárra, en þeim fjölgar sem verið hafa atvinnulausir lengur en í 6 mánuði.
Ástandið var því ögn skárra og fækkaði  um 281 að meðaltali á skrá.

Að meðaltali voru 11.423 atvinnulausir í júlí. Sem fyrr var atvinnuleysið mest á Suðurnesjum, 10,3%, en næstmest á höfuðborgarsvæðinu, 7,6%. Minnst mælist atvinnuleysi á Norðurlandi vestra, aðeins 2%. Hlutfallslega voru ögn fleiri konur atvinnulausar en karlar, eða 6,8% á móti 6,5%. Fleiri karlar fóru líka af atvinnuleysisskrá í mánuðinum en konur. Að meðaltali fækkaði körlum um 343 en konum hins vegar um 62.

Um 62% þeirra sem voru á atvinnuleysisskrá í lok júlí höfðu verið án atvinnu í 6 mánuði eða lengur. Alls eru þeir nú 7.614 talsins og fjölgar um 33 frá lokum júní. Þeim sem verið hafa atvinnulausir í meira en eitt ár fækkar hinsvegar úr 4.609 í lok júní í 4.553 í júlílok. 

Vinnumálastofnun áætlar að atvinnuleysið í ágúst breytist lítið og verði á bilinu 6,4%-6,7%. Á sama tíma í fyrra var skráð atvinnuleysi 7,3% í ágúst, en 7,5% í júlí.///Alvarlegt ástand þetta og ekkert sjáanlegt sem breytir þessu,en það voðalegt hverjum sem er að vera atvinnulaus og niður drepnadi, það er einnig sálardrepandi ,og svo er þetta að vera viðvarandi,en við erum að vona að þessi ríkisstjórn sjái leiðir sem eru okkur færar, að klára það sem er á  allavega eitt Álver og kannski 2 svo og virkjanir sem við þurfum til að geta selt rafmagn á hagstæðum prís sem skiar okkur arði.það er það sem þarf!!!stopp er það sem V.G. kunna og er gott sem það þarfa!!! ég hefi varið að pæla í því að þessi fjarlög sem verið er að vinna að stjórnarandstaðan gerði sýn eiginn,einnig svo kjósa mætti bara um þau hvor væri betri??? þetta svona tillaga sem mætti skoða,svo þessi yfirboð sem ríkisstjórnin kallar og við einnig kæmu upp á borðið og við höfum eitthvað um þau það að segja,er það ekki liðræðið verum við ekki að borga hvort eð er!!!Halli gamli


mbl.is 12.253 atvinnulausir í júlílok
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 1045800

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 46
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband